Tekist er á um formennsku í Samfylkingunni föstudaginn 20. mars eftir að Sigríður Ingibjörg Ingadóttir alþingismaður ákvað í skyndi að bjóða sig fram gegn Árna Páli Árnasyni formanni. Ákvörðun um framboð var tekin klukkan 17.00 fimmtudaginn 19. mars vegna þrýstings og óánægju með formanninn.
Að kvöldi framboðsdags birtist viðtal við Sigríöi Ingibjörgu á vefsíðunni kvennabladid.is. Þar segir;
Er stefnan ennþá að ganga í ESB?
Já. Brussel er að mörgu leyti þunglamaleg og ESB á í allskonar vandræðum en ég er sannfærð um að aðild að ESB og full þátttaka Íslands í samfélagi þjóðanna væri öllum til hagsbóta nema þeim örfáu sem hagnast á einangrunarstefnu og höftum.
Bæði spurningin og svarið endurspegla vörnina og skort á sannfæringu sem einkennir málflutning ESB-aðildarsinna um þessar mundir. Þeir viðurkenna í raun að hafa orðið undir í umræðunum um ágæti aðildarstefnunnar og nálgast ESB-málið með fyrirvörum af ýmsu tagi.
Árni Páll og Sigríður Ingibjörg takast ekki á um hvort er ákafara í þránni eftir ESB-aðild heldur hvort getur orðað fyrirvara sína í málinu á mildari hátt til að fæla þá ekki frá sér í einsmáls-ESB-flokknum sem enn vilja setja ESB-aðild á oddinn.
Bj. Bj.
Björn Bjarnason var þingmaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 1991 til 2009. Hann var menntamálaráðherra 1995 til 2002 og dóms- og kirkjumálaráðherra frá 2003 til 2009. Björn var blaðamaður á Morgunblaðinu og síðar aðstoðarritstjóri 1979 til 1991.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Easy-Jet fækkar ferðum London-Moskva um helming
Brezka flugfélagið Easy-Jet hefur fækkað ferðum á flugleiðinni London-Moskva um helming. Ástæðan er minnkandi eftirspurn og að sögn Moskvutíðinda eru önnur alþjóðleg flugfélög að gera hið sama. Farþegum á þessari flugleið hefur fækkað um 20% það sem af er þessu ári samanborið við sama tíma fyrir ári. Ástæðan er staða rúblunnar og versnandi alþjóðleg samskipti vegna deilunnar um Úkraínu.
Pengingaþvætti fyrir alþjóðlega glæpahringi ógnar bankakerfi Andorra
Athygli beinist að bankakerfinu í Andorra um þessar mundir og yfirvofandi hruni þess.
PIMCO: Evrusvæðið á sér ekki framtíð að óbreyttu
Forsvarsmenn PIMCO, stærsta skuldabréfasjóðs heims, segja að evrusvæðið eigi sér ekki framtíð nema evruríkin sameinist í eins konar „Bandaríkjum Evrópu“. Í því felst að sögn Daily Telegraph að aðildarríkin afsali sér sjálfstæði sínu. Talsmaður PIMCO bendir á að veikur hagvöxtur á evrusvæðinu h...