Hinn 10. nóvember 2011 spurði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra á alþingi hvort ekki væri skynsamlegt að staldra við í ESB-viðræðunum og sjá hvað verða vildi við lausn evru-vandans. Fréttir höfðu borist um að mikill fjárhagsvandi steðjaði að Ítölum. Össur taldi af og frá að ástæða væri til að breyta um stefnu af sinni hálfu og ríkisstjórnarinnar og sagði meðal annars:
„Ég tel að það sé fyllilega ótímabært að slá einhverju föstu um það hvernig sú þróun sem nú er í gangi í Evrópu endar. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni [Sigmundi Davíð], eins og við höfum áður rætt um, að í suðurhluta Evrópu voru óuppgerðar fjármálalegar sakir millum og innan ríkja og það er alveg ljóst að evran er í uppnámi og á í miklum erfiðleikum núna. Ég held hins vegar að þegar upp verður staðið komi hún sterkari út, hugsanlega með öðruvísi þverbitum, hugsanlega með öðruvísi umbúnaði. Menn læra af reynslunni.“
Sigmundi Davíð þótti Össur hafa „mikla spádómsgáfu og meiri þekkingu á þróun efnahagsmála en nokkur hagfræðingur í Evrópusambandinu eða nokkur þeirra sem [hefði] verið að tjá sig um þessi mál í erlendum fjölmiðlum“. Ráðherrann ætti að kynna sér það sem sagt væri um stöðuna innan ESB og evruna í erlendum fjölmiðlum. Sæi hann einn manna leið til að evran yrði sterkari en nokkru sinni fyrr vegna áfallanna ætti hann að bjóða ESB fram krafta sína til lausnar á evru-vandanum.
Það stóð ekki á svari Össurar sem sagði: „Ég get svo fullvissað hv. þingmann um það að utanríkisráðherra fer helst ekki að sofa á kvöldin öðruvísi en að eyða svona klukkutíma í það að lesa um stöðu evrunnar. Það skiptir mjög miklu máli í þessum veltingi sem núna er.“
Hinn 26. apríl 2012 flutti Össur Skarphéðinsson alþingi skýrslu um utanríkismál. Hann var þar sömu skoðunar um evruna og í nóvember 2011 og sagði:
„Siglingin á evrusvæðinu verður vafalaust kröpp enn um sinn. Þar hafa menn gripið til mjög róttækra ráðstafana til að takast á við núverandi vanda, og til að koma í veg fyrir að hann vakni upp aftur.
Það sem mestu skiptir fyrir Íslendinga er hins vegar þetta: Þegar kemur að þeim tímamótum að við getum gengið í myntbandalagið verður evran orðin sterkari, komin á traustari þverbita, og betri gjaldmiðill fyrir Ísland en hún var þegar við lögðum af stað.“
Ekki skal dregið í efa að utanríkisráðherra verji klukkustund fyrir svefn á hverju kvöldi til að glöggva sig á stöðu evrunnar. Martröð evru-stjórnenda heldur ekki fyrir honum vöku: Spánverjar standa á bjargbrúninni, Ítalir bíða þess með öndina í hálsinum sem verða vill, sósíalistar í Frakklandi taka útgjaldaákvarðanir í ríkisfjármálum sem varða sömu leið og Grikkir fóru og horfur eru sagðar neikvæðar í nýju lánshæfismati fyrir Þýskaland. Ótti við samfélagshrun magnast í evru-ríkjum þar sem meira en 50% ungs fólks gengur atvinnulaust. Draumur utanríkisráðherrans um ESB-framtíð Íslands er martröð evru-þjóðanna.
Björn Bjarnason var þingmaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 1991 til 2009. Hann var menntamálaráðherra 1995 til 2002 og dóms- og kirkjumálaráðherra frá 2003 til 2009. Björn var blaðamaður á Morgunblaðinu og síðar aðstoðarritstjóri 1979 til 1991.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Stjórnmál aldrei fjarri söngvakeppni Evrópu
Í kvöld, laugardaginn 18. maí, verður söngvakeppni Evrópu, Evróvisjón, haldin í 58. skipti, að þessu sinni í Malmö en Svíar sigruðu í fimmta sinn á síðasta ári og standa næstir Írum sem hafa sigrað sjö sinnum í keppninni. Svíar, Bretar og Frakkar eru saman í öðru sæti þegar litið er til sigurvegaran...
Um óskiljanlega þráhyggju Samfylkingar
Eftir því sem myndin af stöðu mála í Evrópu verður skýrari verður þráhyggja og evruárátta Samfylkingarinnar óskiljanlegri. Eins og fram kom hér á Evrópuvaktinni í gær hefur bandaríska dagblaðið Wall Street Journal, sem er eitt virtasta viðskiptadagblað í heimi komizt að þeirri niðurstöðu að nú standi yfir í Evrópu mesta efnahagslægð frá lokum heimsstyrjaldarinnar síðari.
ESB mótar sjávarútvegsstefnu án tillits til sjónarmiða Íslendinga
Vinna við mótun sjávarútvegsstefnu ESB fyrir næstu ár er á lokastigi. Undanfarna mánuði hafa fulltrúar ráðherraráðs ESB og ESB-þingsins skipst á skoðunum um efni stefnunnar.
Versnandi efnahagshorfur í evruríkjum
Efnahagshorfur í Evrópusambandslöndunum versna stöðugt. Í morgun voru helztu fréttir í evrópskum fjölmiðlum þær, að efnahagslægð væri gengin í garð í Frakklandi en þá er átt við að verg landsframleiðsla hafi dregizt saman í tvo ársfjórðunga í röð. Það á við um Frakkland nú, að vlf. hefur minnkað um 0,2% bæði á síðasta fjórðungi 2012 og fyrsta fjórðungi þessa árs.