Fimmtudagurinn 22. apríl 2021

Obama velur leið lýðræðisins vegna Sýrlands


Styrmir Gunnarsson
9. september 2013 klukkan 09:24

Það er afar athyglisvert að fylgjast með framvindu mála í Bandaríkjunum og Bretlandi vegna áforma um árás á Sýrland vegna notkunar efnavopna þar. Svo virðist sem Barac Obama, forseti Bandaríkjanna hafi ákveðið að fara leið lýðræðisins í stað þess að notfæra sér möguleika, sem hann hefur skv. bandarískum lögum til þess að taka þessar ákvarðanir einn.

Atkvæðagreiðslan í brezka þinginu markaði að sjálfsögðu þáttaskil. Þingið tók fram fyrir hendur forsætisráðherrans í máli, sem varðar hernaðarleg afskipti Breta af málefnum annarra þjóða. Hvort sem menn eru með eða móti árás á Sýrlandi er ljóst að lýðræðisleg vinnubrögð voru höfð í heiðri.

Í kjölfar þess tók Obama ákvörðun um að leggja málið fyrir bandaríska þingið, þótt það hafi vafalaust verið af pólitískum ástæðum innanlands. En sú ákvörðun þýðir hins vegar að málið er rætt meðal fólks um landið allt og lýðræðislegar umræður fara fram ekki bara á Bandaríkjaþingi heldur út um allt samfélagið, á heimilum, vinnustöðum, kaffihúsum o.sv. frv.

Þetta er til fyrirmyndar frá sjónarhóli lýðræðislegra vinnubragða.

Eins og við mátti búast er Obama sakaður um að vera hikandi og geta ekki gert upp hug sinn. Slíkar ákvarðanir koma alltaf fram á hendur kjörnum fulltrúum sem kjósa að fara leið lýðræðisins í stað þess að stjórna af geðþótta.

Þetta er umhugsunarefni fyrir fleiri en Breta og Bandaríkjamenn.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri leiðarar

Rússar láta Finna finna fyrir sér

Það hefur ekki farið fram hjá lesendum Evrópu­vaktarinnar að umræður í Finnlandi um öryggismál Finna hafa aukizt mjög í kjölfarið á deilunum um Úkraínu. Spurningar hafa vaknað um hvort Finnar eigi að gerast aðilar að Atlantshafsbandalaginu eða láta duga að auka samstarf við Svía um öryggismál.

ESB-þingkosningar og lýðræðisþróunin

Kosningar til ESB-þingsins eru í Bretlandi og Hollandi fimmtudaginn 22. maí og síðan í hverju ESB-landinu á eftir öðru þar til sunnudaginn 25. maí. Stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi hafa lagt áherslu á nauðsyn þess að dregið verði úr mið­stjórnar­valdi ESB-stofnana í Brussel í von um að andstaða þeir...

Þjóðverjar vilja ekki aukin afskipti af alþjóða­málum

Þýzkaland er orðið öflugasta ríkið í Evrópu á ný. Þýzkaland stjórnar Evrópu­sambandinu. Þar gerist ekkert, sem Þjóðverjar eru ekki sáttir við. Í þessu samhengi er niðurstaða nýrrar könnunar á viðhorfi almennings í Þýzkalandi til afskipta Þjóðverja af alþjóða­málum athyglisverð en frá henni er sagt í fréttum Evrópu­vaktarinnar í dag.

Þáttaskil í samskiptum NATO við Rússa - faðmlag Rússa og Kínverja - ógn í Norður-Íshafi?

Anders Fogh Rasmussen, framkvæmda­stjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO) var ómyrkur í máli um Rússa á reglulegum blaðamannafundi sínum í Brussel mánudaginn 19. maí. Hann sagði að viðleitni þeirra til að sundra Úkraínu hefði skapað „algjörlega nýja stöðu í öryggismálum Evrópu“. Það sem gerðist um þess...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS