Nú um helgina flugu nokkrir írskir embættismenn til Brussel. Erindi þeirra þangað er að leggja fyrir starfsmenn framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins meginlínur nýs fjárlagafrumvarps írsku ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ári og fá óformlegt samþykki framkvæmdastjórnarinnar fyrir því. Embættismennirnir írsku hittu starfsbræður sína hjá Evrópusambandinu í gærkvöldi og halda áfram fundum með þeim í dag.
Frá þessu segir írska dagblaðið Irish Times í dag svo og vefmiðillinn euobserver, sem sérhæfir sig í fréttum um Evrópusambandið.
Nýtt fjárlagafrumvarp er með þessum hætti lagt fyrir yfirvöld ESB í Brussel áður en það hefur verið samþykkt í írsku ríkisstjórninni og áður en það er lagt fram á írska þinginu.
Hvað mundu Íslendingar segja um það að hópur embættismanna færi héðan til Brussel til þess að fá samþykki Evrópusambandsins fyrir fjárlagafrumvarpi íslenzku ríkisstjórnarinnar áður en það væri lagt fram á ríkisstjórnarfundi og áður en það væri lagt fram á Alþingi? Hvað mundu aðrir ráðherrar segja? Hvað mundu þingmenn í öllum flokkum segja?
Þetta er veruleikinn, þegar ríki eiga aðild að Evrópusambandinu. Og það á ekki bara við um ríki sem hafa verið í vandræðum eins og Írland. Að því er stefnt að þetta verði kerfið í framtíðinni innan Evrópusambandsins.
Hvenær verður aðildarumsóknin dregin formlega til baka?
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Rússar láta Finna finna fyrir sér
Það hefur ekki farið fram hjá lesendum Evrópuvaktarinnar að umræður í Finnlandi um öryggismál Finna hafa aukizt mjög í kjölfarið á deilunum um Úkraínu. Spurningar hafa vaknað um hvort Finnar eigi að gerast aðilar að Atlantshafsbandalaginu eða láta duga að auka samstarf við Svía um öryggismál.
ESB-þingkosningar og lýðræðisþróunin
Kosningar til ESB-þingsins eru í Bretlandi og Hollandi fimmtudaginn 22. maí og síðan í hverju ESB-landinu á eftir öðru þar til sunnudaginn 25. maí. Stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi hafa lagt áherslu á nauðsyn þess að dregið verði úr miðstjórnarvaldi ESB-stofnana í Brussel í von um að andstaða þeir...
Þjóðverjar vilja ekki aukin afskipti af alþjóðamálum
Þýzkaland er orðið öflugasta ríkið í Evrópu á ný. Þýzkaland stjórnar Evrópusambandinu. Þar gerist ekkert, sem Þjóðverjar eru ekki sáttir við. Í þessu samhengi er niðurstaða nýrrar könnunar á viðhorfi almennings í Þýzkalandi til afskipta Þjóðverja af alþjóðamálum athyglisverð en frá henni er sagt í fréttum Evrópuvaktarinnar í dag.
Þáttaskil í samskiptum NATO við Rússa - faðmlag Rússa og Kínverja - ógn í Norður-Íshafi?
Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO) var ómyrkur í máli um Rússa á reglulegum blaðamannafundi sínum í Brussel mánudaginn 19. maí. Hann sagði að viðleitni þeirra til að sundra Úkraínu hefði skapað „algjörlega nýja stöðu í öryggismálum Evrópu“. Það sem gerðist um þess...