| « 19. ágúst |
■ 20. ágúst 2010 |
» 21. ágúst |
Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður Vinstri grænna og formaður Heimssýnar, segir í viðtali við Morgunblaðið í dag, að hann geti ekki stutt fjárlagagerð, sem geri ráð fyrir kostnaði við alögunarferli ESB á sama tíma og skorin séu niður framlög til velferðarmála.
Þjóðfélagssprenging í Grikklandi?
Framkvæmdastjórnin í Brussel er byrjuð að viðurkenna hættu á þjóðfélagsóeirðum í Grikklandi vegna aðhaldsaðgerðanna en segir óhjákvæmilegt að haldið verði fast við þær. Þetta kemur fram á euobserver í dag. Sumir flokksmenn forsætisráðherrans óttast að aðgerðir ríkisstjórnarinnar framkalli eins konar þjóðfélagssprengingu. Frá áramótum hefur verið röð daglangra verkfalla í Grikklandi.
Banni við sölu selaafurða frestað
Undirréttur Evrópudómstólsins hefur frestað sölubanni á selaafurðir, sem taka átti gildi í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu, sem birt var í gær á vegum grænlenzkra og kandadískra samtaka Inúíta, sem barizt hafa gegn banninu.
Lífseigasta röksemd aðildarsinna að Evrópusambandinu er sú, að það sé nauðsynlegt að fá að vita hvaða samningur geti verið í boði fyrir Ísland við aðild þannig að þjóðin geti tekið ákvörðun í þjóðaratkvæðagreiðslu á grundvelli slíks samnings. Sumir segja sem svo, að þeir hafi ekki gert upp hug sinn en vilji fá að vita hvað í boði sé.
Seðlabankinn afsannar evru-fullyrðingar Össurar í Brussel
„Ég átti satt að segja von á því að aðild að myntbandalaginu myndi skipta meira máli,“ segir Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, í Fréttablaðinu fimmtudaginn 26. ágúst, þegar rætt við hann um niðurstöðu viðamikillar rannsóknar hans og Þorvarðar Tjörva Ólafssonar á heimskreppu...