« 30. ágúst |
■ 31. ágúst 2010 |
» 1. september |
Norðmenn fagna áhuga Kínverja á Norðurskautinu
Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, fagnaði áhuga Kínverja á norðurskautinu og hvatti til þess, að Kína yrði formlega samþykkt sem áheyrnaraðili að Norðurskautsráðinu í ræðu hjá Alþjóðamálastofnun Kína, China Institute of International Studies, í Peking 30. ágúst sl. Utanríkisráðherrann mi...
Kína á stærri herflota en Bandaríkin
Alþjóðahermálastofnunin í London (IISS) telur, að Kínverjar eigi nú fleiri herskip en Bandaríkjamenn, sem hafa um langan aldur átt stærsta herflota í heimi. Á vefsíðu The Economist segir, að IISS hafi ákveðið eigin skilgreiningu á herskipi við gerð samanburðarins. Þessi þróun í herflotaeign sé enn ein staðfestingin um vöxt Kína á öllum sviðum.
ESB-uppgjör vinstri-grænna færist nær
Að halda því fram, að Íslandi sé betur borgið innan ESB en utan krefst sterkari raka en þeirra, sem kynnt hafa verið til þessa. Æ betur verður ljóst,að umsókn Íslands um aðild að ESB byggðist aðeins á ágengni ef ekki beinlínis frekju Samfylkingarinnar í garð annarra flokka.
Finnskum bændum hefur fækkað um helming eftir ESB-aðild – fjöldi kalkúna sjöfaldast
Samningamenn Íslendinga við ESB hafa haldið því fram, að Finnar hafi fengið vildarkjör fyrir finnskan landbúnað við aðild að ESB. Geti Íslendingar því fengið jafngóð kjör ef ekki betri. Finnskir bændur voru ekki upplýstir um, hvaða áhrif ESB-aðild myndi hafa á landbúnað í Finnlandi. Í aðildarsát...
„Aðförin“ og atkvæðagreiðslan um „ekki neitt“
Svavar Gestsson, fyrrverandi sendiherra á erfitt með að sætta sig við að þjóðin hafnaði þeim ráðum hans, Steingríms J. Sigfússonar og Jóhönnu Sigurðardóttur að borga mörg hundruð milljarða króna vegna skulda gamla Landsbankans í Bretlandi og Hollandi. Reiði sendiherrans fyrrverandi brýst fram í ...