Fimmtudagurinn 23. maí 2013

Miðvikudagurinn 9. febrúar 2011

«
8. febrúar

9. febrúar 2011
»
10. febrúar
Fréttir

Mubarak þarf ekki að fara til læknis í Þýskalandi segir Suleiman

Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, hefur hafnað boði um að setjast að í hágæða heilsuhæli í Þýskalandi til að auðvelda honum virðulega brottför úr forsetaembættinu. Vara­forseti Egyptalands sagði að forsetinn þarfnaðist ekki læknisaðstoðar. Stjórnmálamenn í Bandaríkjunum og Þýskalandi hafa hreyft hugmyndum um sjúkrahúsdvöl.

Franski forsætis­ráðherrann sætir gagnrýni fyrir frí á kostnað Mubaraks

François Fillon, forsætis­ráðherra Frakka, hefur sagt að Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, hafi lánað sér og fjölskyldu sinni flugvél þegar þau voru í fríi í Egyptalandi um áramótin. Þá greiddi Mubarak einnig gistikostnað Fillon-fjölskyldunnar.

Forsætis­ráðherra Dana: búum okkur undir að taka afstöðu til evrunnar

Áform evru-landanna um að auka samstarf sitt getur leitt til þess að Danir verði að taka afstöðu til þess í þjóðar­atkvæða­greiðslu hvort þeir eigi að standa áfram utan við samstarfið, sagði Lars Lökke Rasmussen, forsætis­ráðherra Dana, í umræðum á danska þinginu miðvikudaginn 9. febrúar. Hann vísaði þ...

Sádí-Arabía: Minni olíulindir-erfitt að halda verðinu niðri

Eitt af því sem fram kemur í Wikileaksskjölunum er að Sádí-Arabía kunni að hafa gert meira úr olíulindum sínum en efni standa til og að þær séu mun minni en þeir sjálfir hafa haldið fram Þetta þýði að Sádi-Arabar geti ekki aukið framleiðslu á olíu til þess að halda verði á heims­markaði niðri og ...

Vaxandi andstaða við hugmyndir Þjóðverja og Frakka

Euobserver, vefmiðill, sem birtir daglegar fréttir um málefni Evrópu­sambandsins og aðildarríkja þess segir að vaxandi andstaða sé við hugmyndir Þjóðverja og Frakka um samræmingu stefnu aðildarríkjanna og evruríkjanna sérstaklega í ríkisfjármálum, skattamálum, eftirlaunamálum, skuldamálum o.fl. N...

Leiðarar

Ísland og meginstefin í heimsþróun

Það eru nokkur meginstef (megatrends) í þróun heimsmála, sem ástæða er til fyrir okkur Íslendinga að gefa gaum að og meta, þegar við horfum til framtíðar. Það stendur yfir mikil valdatilfærsla á heimsbyggðinni. Völdin eru að færast frá þjóðunum beggja vegna Atlantshafs til Asíuríkja og að einhverju leyti til Suður-Ameríku og þá sérstaklega til Brazilíu.

Pistlar

Átrúnaður á erlenda forsjá

Í hinni merku bók SOVÉT ÍSLAND eftir Þór Whitehead prófessor er sagt frá ferðum íslenskra kommúnista til Moskvu á þriðja áratugi tuttugustu aldar. Þetta voru hugsjónamenn sem reyndu að berjast fyrir því að Ísland gengi í Sovétríkin, margir þeirra fóru í Leninskólann í Moskvu. Kommúnista­flokkur Íslands var deild í Komintern og tók við fyrirmælum frá höfuðstöðvunum í Moskvu.

Ekkert fullveldisafsal?

ESB sinnar halda því fram fullum fetum, að innganga í ESB sé ekkert fullveldisafsal. Þótt fólk kjósi aðild að ESB, þá þykir nú betra að halda sig við staðreyndir, eins og reyndar Stefan Füler stækkunar­stjóri sambandsins benti á, en stuðningsmenn sambandsins láta heilræði hins mæta manns, eins og vind um eyru þjóta.

Í pottinum

Greiði sem ekki verður endurgoldinn!

Vandamál ríkis­stjórnar­innar virðast hafa horfið eins og dögg fyrir sólu síðustu daga.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS