Danmörk: Villy Søvndal sætir harðri gagnrýni – SF í upplausn
Danskir fjölmiðlar segja frá því sunnudaginn 11. mars að mikill órói sé innan ríkisstjórnar Helle Thorning Schmidt vegna upplausnar í Sósíalíska þjóðarflokknum (SF) og ráðherrar flokksins tali illa um Villy Søvndal flokksformanninn og utanríkisráðherra og segi hann hinn veika hlekk í stjórnarsamst...
Frakkar munu hætta þátttöku í Schengen-samstarfinu verði því ekki breytt sagði Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, sunnudaginn 11. mars á fjölmennum kosningafundi í Villepinte, Seine-Saint-Denis, þar sem hann reyndi enn að blása lífi í eigin baráttu en forsetinn á undir högg að sækja gagnvart Fra...
Hrein vinstri stjórn í Slóvakíu: Boðar varðstöðu um evruna og hækkun skatta
Robert Fico, leiðtogi jafnaðarmanna í Slóvakíu, hét sunnudaginn 11. mars að standa vörð um evruna eftir að flokkur hans hlaut hreinan meirihluta í kosningum laugardaginn 19. mars. Smer-SD flokkur Ficos hlaut 83 sæti af 150 á þingi Slóvakíu og er þetta í fyrsta sinn síðan Slóvakía varð sjálfstætt rík...
Danmörk: Jafnaðarmenn tapa stöðugt fylgi-komnir í 18,5%-Venstre langstærsti flokkurinn
Danskir jafnaðarmenn eru komnir niður í 18,5% fylgi í skoðanakönnun sem gerð var fyrir Ritzau og Danska útvarpið segir frá í dag. Samkvæmt því mundi flokkur Helle Thorning-Schmidt einungis fá 33 þingsæti í kosningum nú. Ein önnur könnun, sem gerð var í byrjun marz sýnir sambærilega niðurstöðu fyrir jafnaðarmenn. Venstre er langstærsti flokkur Danmerkur skv.
Spánn: Afhending lykla eða afsal eigna í stað nauðungaruppboða
Spænska ríkisstjórnin samþykkti á föstudag reglur um gott framferði banka gagnvart skuldurum, sem gerir bæði ráð fyrir að fólk afhendi lánveitanda lykla að fasteign sinni og sé þar með laust allra mála eða að fólk afsali eign í stað nauðungaruppboðs þegar allir meðlimir fjölskyldu eru atvinnulausir og veðlán allt að 200 þúsund evrum eða um 34 milljónum íslenzkra króna.
Venizelos líklegur arftaki Papandreou sem leiðtogi PASOK
Evangelos Venizelos, fjármálaráðherra Grikklands er líklegasti arftaki George Papandreou, sem leiðtogi PASOK, flokks sósíalista á Grikklandi að sögn ekathimerini, gríska vefmiðilsins en leiðtogakjör fer fram hinn 18. marz n.k. Venizelos hefur hlotið stuðning annarra forystumanna PASOK þar á meðal tv...
Gerry Adams: Atkvæðagreiðsla um sameiningu Írlands er óhjákvæmileg
Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein segir að þjóðaratkvæðagreiðsla um skiptingu Írlands sé óhjákvæmileg. Með þessum ummælum var Adams að svara yfirlýsingu Owen Paterson,(brezki Íhaldsflokkurinn) ráðherra Norður-Írlands í brezku stjórninni, sem sagði fyrir nokkrum dögum, að það væri ekki á dagskrá að efna til slíkrar atkvæðagreiðslu nú og þess hefði ekki verið óskað.
WSJ: Þjóðverjar hvetja SE til að ná inn umframfé og snúast gegn verðbólgu
Wall Street Journal segir í Evrópuútgáfu sinni nú um helgina, að Þjóðverjar leggi nú vaxandi áherzlu á ný á að halda verðbólgunni í skefjum og tryggja stöðugleika evrunnar. Þeir séu nú sannfærðari en áður um að tekizt hafi að ná utan um vandamál evrusvæðisins.