Sunnudagurinn 19. maí 2013

Mánudagurinn 21. maí 2012

«
20. maí

21. maí 2012
»
22. maí
Fréttir

Fjármála­ráðherrar Þýskalands og Frakklands segjast ætla að bjarga evrunni með Grikki innanborðs

Fjármála­ráðherrar Þýskalands og Frakklands hafa áréttað að þeir muni vinna saman að lausn á vanda evru-svæðisins. Ólík viðhorf þeirra til evru-skulda­bréfa kunna hins vegar að flækja málið.

Alexis Tsipras segir Angelu Merkel stríð á hendur - hún ákveði ekki um hvað Grikkir kjósi

Alexis Tsipras, leiðtogi fylkingar vinstrisinna í Grikklandi, Syriza, sagði Angelu Merkel Þýskalandskanslara stríð á hendur á blaðamannafundi í París mánudaginn 21. maí, það væri ekki hennar að ákveða hvort fram færi þjóðar­atkvæða­greiðsla í Grikklandi. „Grikkland er fullvalda ríki [… Frú Merkel ákv...

Váfugl Halls kemur út á ensku -andstaða við ESB magnast í Bretlandi - ESB líkt við heimsveldi heimskunnar

Vulture‘s Lair, bók Halls Hallssonar, fyrrverandi fréttamanns og blaðamanns á Morgunblaðinu, var í vikunni kynnt í Westminster-höll, hjarta breska heimsveldsins og húsakynnum breska þingsins. Bókin er þýðing á Váfugli sem kom út fyrir nokkrum árum. Fjölmenni var við útgáfuna, þar á meðal þingmenn og lávarðar segir í fréttatilkynningu sem Evrópu­vaktinni hefur borist.

Danir endurnýja þátttöku sína í smíði fjarstýrða flugvéla - vekja fögnuð í Washington

Danir hafa ákveðið að breyta um stefnu og taka þátt í sameiginlegu NATO-verkefni sem snýst um að festa fé í þróun og smíði fimm fjarstýrðra flugvéla (drones á ensku). Í danska blaðinu Politiken segir mánudaginn 21. maí að Barack Obama hafi hvatt Helle Thorning-Schmidt, forsætis­ráðherra Danmerkur, ti...

NATO-leiðtogar: Samþykkja að virkja fyrsta þáttinn í eldflaugavarnarkerfi - Rússar hóta gagnaðgerðum

Leiðtogar 28 aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) samþykktu að kvöldi sunnudags 20. maí á fundi í Chicago að virkja fyrsta hluta í sameiginlegu eldflaugavarnarkerfi. Þá hafa verið kynnt áform á vettvangi NATO sem miða að því að sameina krafta aðildarríkjanna meira en áður í þágu varnarviðbún...

Hollande setur fram tillögu um útgáfu evru­bréfa á leiðtogafundi

Frakkar munu leggja fram tillögu á leiðtogafundi ESB-ríkja á miðvikudag um útgáfu á sameiginlegum skulda­bréfum evruríkja og hvetja Þjóðverja til að láta af andstöðu við slíkar hugmyndir. Irish Times bendir á að Francois Hollande, forseti Frakklands hafi rætt þá hugmynd á kvöldverðarfundi leiðtoga G-8 ríkjanna í Camp David fyrir helgi. Blaðið segir að Írar muni styðja þessa tilögu Hollande.

DT: Veik efnahagsþróun í Bandaríkjunum ógnar Suður-Evrópu

Efnahagslegur vöxtur í Bandaríkjunum er að stöðvast, segir Ambrose Evans-Pritchard, alþjóðlegur viðskiptarit­stjóri Daily Telegraph í blaði sínu í dag. Hann segir suma greinendur telja, að Bandaríkin séu að sigla inn í nýtt samdráttarskeið, sem hafi ekki gerzt með þeim hætti frá árinu 1937, þegar bakslag kom í hagvöxt eftir Kreppuna miklu. Framleiðsla í Bandaríkjunum hafi dregizt saman.

Nick Clegg: Hætta á þjóðernis­stefnu, öfgum, einangrun og lýðskrumi

Nick Clegg, varaforsætis­ráðherra Bretlands og leiðtogi Frjálslynda flokksins sagði í gær að deilur í Bretlandi um aðild að Evrópu­sambandinu yrðu smámál miðað við þá hættu, sem væri á vaxandi styrk pólitískra öfgahreyfinga. Hann viðurkenndi að Evrópu­hugsjónin stæði frammi fyrir skorti á tiltrú og trausti fólks.

Kenneth Clarke: Hægri þjóðernissinnar vilja þjóðar­atkvæða­greiðslu-vilja lifa í glæsilegri einangrun eins og Ísland

Kenneth Clarke, dómsmála­ráðherra Breta, segir að þingmenn sem vilji þjóðar­atkvæða­greiðslu um veru Bretlands í Evrópu­sambandinu sé hægri sinnaðir þjóðernissinnar, sem mundu kalla ófarnað yfir Bretland. Ráðherrann segir að slík atkvæða­greiðsla þjóni engum tilgangi og væri hættuleg.

Leiðarar

Af hverju veldur hugmynd um þjóðar­atkvæða­greiðslu uppnámi í Bretlandi?

Hugleiðingar innan brezka Verkamanna­flokksins um að lofa þjóðar­atkvæða­greiðslu um framtíð Bretlands innan ESB í næstu þingkosningum í Bretland hafa valdið uppnámi í hinu pólitíska sam­félagi þar.

Í pottinum

Ísland: Tilraunastofa í efnahagsmálum og þjóðmálum

Wall Street Journal birtir um helgina sérstaka úttekt á efnahagsástandinu á Íslandi eins og það hefur þróazt eftir hrun. Alþjóðlegur viðskiptarit­stjóri Daily Telegraph vísar til Íslands í umfjöllun í blaðinu sínu í dag um hugsanlega upptöku Grikkja á drökmum á ný og telur að reynslan af endurreisn bankakerfisins á Íslandi geti komið að notum í slíku tilviki í Grikklandi.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS