Benedikt Jónsson, sendiherra Íslands í London, hitti fulltrúa evrópskra samtaka sem gæta hagsmuna uppsjávarveiða fimmtudaginn 14. júní í London. Var rætt um skiptingu makrílstofnsins í Norðaustur-Atlantshafi. Til fundarins var stofnað sameiginlega af sendiherranum og, Eilidh Whiteford, þingmanni Sko...
Norðmenn kaupa 52 bandarískar F-35 orrustuþotur fyrir 1200 milljarða ISK
Norska ríkið hefur staðfest kaup á fyrstu tveimur F-35 orrustuþotunum af 52 sem það ætlar að kaupa af Bandaríkjamönnum og þar sem gengið frá stærsta kaupsamningi í sögu sinni.
Matfyrirtækið Egan Jones lækkar lánshæfiseinkunn Frakklands vegna stefnu nýs forseta landsins
Hræðsla við útbreiðslu skuldavandans á evru-svæðinu hefur leitt til þess að alþjóðlegu matsfyrirtækin Moody‘s og Egan Jones hafa lækkað lánshæfiseinkunnir fimm hollenskra banka og franska ríkisins. Nýr Frakklandsforseti er sagður bera hluta ábyrgðarinnar.
Lánakostnaður spænska og ítalska ríkisins hækkar, deilur magnast milli Þjóðverja og Frakka. Jean-Marc Ayrault, forsætisráðherra Frakklands, gerir opinberlega atlögu að Angelu Merkel Þýskalandskanslara.
Moody´s lækkar lánshæfismat hollenzkra og belgískra banka
Moody´s hefur lækkað lánshæfismat hollenzkra og belgískra banka vegna stöðunnar á evrusvæðinu. Þar á meðal eru ING og ABN Amró. Langtímamat á ING, Rabobank, ABN, LeasePlan og KBC var lækkað um tvö stig og SNS um eitt. Moody´s segir að hollenzkir bankar standi frammi fyrir erfiðri stöðu á þessu ári og hugsanlega lengur.
Seðlabankar um allan heim í startholum til að auka peningaflæði ef nauðsyn krefur
Hlutabréfamarkaðir tóku mikinn kipp síðdegis í gær, þegar fréttir bárust um að seðlabankar víða um heim væru í startholunum að grípa inn ef staðan á mörkuðum þróaðist á versta veg eftir þingkosningarnar í Grikklandi á sunnudag. Embættismenn frá G-20 ríkjum (sem halda fund í Mexikó í næstu viku) staðfestu þetta við Reuters í gær.
Bretland: Englandsbanki dælir 100 milljörðum punda inn í bankana
Brezka ríkisstjórnin og Englandsbanki hafa að undanförnu undirbúið lánveitingar Englandsbanka til banka þar í landi með lægri vöxtum en tíðkast á markaði til 3-4 ára en með skilmálum um að peningarnir verði notaðir til að auka lánveitingar til fyrirtækja og heimila. Þetta kom fram í ræðu Sir Mervyn King Englandsbankastjóra í Mansion House (ráðhúsi Lundúna) í gær.
Tímabært að hefja umræður um lok aðildarumsóknar
Aðildarumsókn Íslands að ESB er andvana fædd enda ekki við öðru að búast eins og til hennar var stofnað. Aðildarsinnar gerðu grundvallarmistök, þegar þeir samþykktu ekki að tekin yrði ákvörðun í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort leggja bæri fram umsókn. Hefði ríkisstjórnin haft slíkt umboð að baki sér þegar umsókn var lögð fram væri staða hennar í málinu önnur en hún er nú.