« 29. september |
■ 30. september 2012 |
» 1. október |
Danmörk: Íhaldsflokkurinn leitar hugmyndalegrar endurnýjunar
Danski Íhaldsflokkurinn (Det Konservative Folkeparti) er illa staddur með 3,9% fylgi skv. skoðanakönnunum. Nú um helgina stendur yfir fundur landsráðs flokksins í Herning og segir Thomas Larsen, pólitískur ritstjóri Berlingske, að því sé ekki að leyna, að Lars Barfoed, leiðtogi flokksins hafi haft ýmislegt nýtt fram að færa í ræðu sinni.
Bretland: „Fátæktarstyrkir“ Breta til Íslands enn til umæðu
Aðra helgina í röð eru „fátæktarstyrkir“ Breta til Íslands enn til umræðu í brezkum blöðum og nú bæði í Sunday Telegraph og Sunday Times (skv.
Framsóknarflokkur: Vigdís Hauksdóttir varaformaður?
Vigdís Hauksdóttir, alþingismaður Framsóknarflokksins er augljóslega í mikilli pólitískri sókn, sem fer mjög fyrir brjóstið á pólitískri elítu, sem telur að endurnýjun í flokkum eigi ekki að koma utan frá heldur innan frá og helzt ekki nema úr röðum elítunnar sjálfrar.