ESB: Biðlaunaréttur til 200 milljóna króna fyrir 3 mánaða bráðabirgða setu í framkvæmdastjórninni
Þeir sem gegna embættum sem framkvæmastjórar ESB til bráðabirgða í þrjá mánuði fá auk fullra launa á starfstíma sínum, þriggja ára biðlaun og lífeyrisréttindi til frambúðar. Ástæðan fyrir þessum bráðabirgða-framkvæmdastjórum er að fjórir úr fráfarandi framkvæmdastjórn buðu sig fram til ESB-þingsins og náðu kjöri. Við það misstu þeir rétt til setu í framkvæmdastjórninni.
Ríkisstjórnin þegir um yfirlýsingu Junckers
Evrópusambandið hefur lokað að sér og hleypir engum inn næstu fimm ár. Enginn veit hvað gerist eftir það. Samfylkingin hamast við að halda því fram að engum dyrum hafi verið lokað! Aðildarsinnar í Sjálfstæðisflokknum, sem ætluðu að stofna nýjan flokk láta ekki í sér heyra. Ekkert af þessu kemur á óvart.