Þriðjudagurinn 21. maí 2013

Verður SAMSTAÐA okkar SYRIZA?


11. maí 2012 klukkan 10:52

Það er óneitanlega athyglisvert að fylgjast með þróun mála í Grikklandi þessa dagana. SYRIZA, sem er einhvers konar bandalag smáflokka til vinstri vann mikinn sigur í þingkosningunum sl. sunnudag og tók við af PASOK, flokki sósíalista, sem leiðandi afl á vinstri kanti stjórnmálanna. Og það sem meir er. Skoðanakannanir benda til að verði kosið aftur í júní muni SYRIZA fá um 28% atkvæða en PASOK fara niður í 12% eða rúmlega það. Þetta þýðir að SYRIZA er að taka við af PASOK sem leiðandi afl til vinstri í grískum stjórnmálum.

Það er áhugavert að velta því fyrir sér, hvort eitthvað slíkt geti gerzt í íslenzkum stjórnmálum í næstu þingkosningum að ári liðnu. Vinstri grænir hafa verið forystuafl á vinstri væng stjórnmálanna. Það er eiginlega ekki hægt að tala um Samfylkinguna í þessu samhengi. Hún á í raun og veru ekkert skylt lengur við jafnaðarmannaflokk. Hún er fyrst og fremst einhvers konar hagsmunabandalag pólitískra yfirstéttahópa, aðallega í háskólanum. Hún er sízt af öllu launþegaflokkur. Hefur einhver orðið þess var að launþegar eigi sér talsmenn innan þess flokks?!

En Vinstri grænir eru í upplausn. Þrír þingmenn hafa yfirgefið þingflokkinn frá kosningunum 2009, þau Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason. Jón Bjarnason stendur í dyrunum en hefur ekki tekið skrefið út. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir er spurningamerki. Steingrímir J. sjálfur veit ekki hvað hann vill. Svandís Svavarsdóttir og Álfheiður Ingadóttir reyna að halda fast í pólitíska arfleifð sína en lítið er að verða eftir af henni. Ef einhver getur haldið þessum flokki saman í kosningum er það sennilega Katrín Jakobsdóttir.

En spurning er þessi: Bíða VG sömu örlög og PASOK í Grikklandi? Er hugsanlegt að SAMSTAÐA Lilju Mósesdóttur verði okkar SYRIZA?

Með öðrum orðum: Verður SAMSTAÐA forystuflokkur á vinstri væng eftir þingkosningar vorið 2013?

Þetta er umhugsunarefni og ekki sízt fyrir þá, sem hafa áhuga á að mynda ríkisstjórn eftir næstu kosningar.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í stjórnmálavaktinni

Um Hróa Hött okkar tíma

Hrói Höttur lifir góðu lífi og nú sem eins konar tákn baráttu hins almenna borgara við alþjóðlega fjármála­markaði.

Kosningar meðal Sama í Svíþjóð-réttur hreindýrahjarða eitt helzta kosningamálið

Í gær fóru fram í Svíþjóð kosningar til þings Sama, sem kemur fram fyrir hönd Sama í Svíþjóð. Slíkar kosningar fara fram á fjögurra ára fresti. Evrópu­vaktin hefur ekki upplýsingar um hvort úrslit kosninganna liggja fyrir eða hver þau urðu. Hins vegar fjallar vefmiðillinn Alska Dispatch um þau málefni, sem brenna á Sömum í Svíþjóð um þessar mundir. Níu flokkar buðu fram í kosningunum.

Aðhalds­stefnan vekur upp siðferðilegar spurningar ekki síður en efnahagslegar

Siðferðileg álitamál verða æ ríkari þáttur í opinberum umræðum í Evrópu um evrukreppuna og afleiðingar hennar, svo sem aðhaldspólitíkina, sem Þjóðverjar hafa verið í forystu fyrir en verður stöðugt umdeildari. Reuters birtir nú í sérstökum skoðanadálki grein eftir mann að nafni Nicholas Wapshott, sem er einn af æðstu ráðamönnum Times í London.

Ummæli Charles Moore eru umhugsunarefni fyrir Árna Pál

Maður að nafni Charles Moore, skrifar reglulega dálka í brezka dagblaðið Daily Telegraph. Hann er fyrrum rit­stjóri blaðsins og ritstýrði reyndar einnig tímaritinu Spectator um skeið. Hann er því innanbúðarmaður í Íhalds­flokknum og nú í apríl kom út fyrsta bindi ævisögu hans um Margréti Thatcher.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS