Laugardagurinn 18. maí 2013

Danmörk: Er stórnjósnari Stasi fundinn?-Fyrrverandi blaðamaður á Extrabladet


26. maí 2012 klukkan 09:52

Er stórnjósnari Stasi, austur-þýzku leyniþjónustunnar í Danmörku fundinn? Berlingske Tidende gefur það til kynna í morgun og segir að um sé að ræða þjóðkunnan fyrrum blaðamann á Extrabladet, að nafni Per Michaelsen, sem nú er um sjötugt. Heimildir Berlingske er Politiken en Politiken og Extrabladet eru gefin út af sama útgáfufélagi.

Fyrir nokkru skýrði Evrópuvaktin frá því að danskur sagnfræðingur, Thomas Wegener Friis teldi sig hafa fundið sannanir fyrir starfsemi dansks stórnjósnara í þágu Stasi en gaf ekki upp nafnið. Nú segir Politiken að Wegener Friis hafi nefnt nafn Per Michaelsen við nokkra aðila.

Per Michaelsen hefur fengið frelsisverðlaun Venstre (stærsta stjórnmálaflokks Danmerkur skv. könnunum) og fjölda annarra viðurkenninga fyrir að fletta ofan af Dönum, sem störfuðu fyrir Stasi.

Í frétt Berlingske kemur fram, að það hafi þótt með ólíkindum hvernig Per Michelsen hafi getað afhjúpað nöfn og dulnefni danskra njósnara Stasi tveimur árum áður en skipuleg rannsókn hófst á skjölum Stasi.

Berlingske segir að Michaelsen hafi ekki brugðizt við uppljóstrunum Politiken. Hann hafi hins vegar annars staðar bent á, að hann hafi verið rekinn frá Austur-Þýzkalandi skv. sérstökum fyrirmælum Ulbrichts og yfirmaður öryggislögreglunnar þá hafi verið Honnecker, síðar leiðtogi kommúnistaflokksins. Hann hafi setið í fangelsi í Prag af því að hann hafði samband við talsmann Charta 77, Jiri Hajek, sem var utanríkisráðherra í ríkisstjórn Dubceks.

Hafi Politiken og Thomas Wegener Friis rétt fyrir sér hafa þær aðgerðir yfirvalda í Austur-Þýzkalandi og í Tékkóslóvakíu þeirra tíma augljóslega átt þátt í að styrkja stöðu Michaelsen, sem harðsnúins andkommúnista í augum umheimsins.

PS: Einn af lesendum Evrópuvaktarinnar spurði í morgun hvað liði ítarlegri rannsókn á starfsemi Stasi á Íslandi og hverjir hefðu verið þar að verki. Þetta er rétt athugasemd. Það er kominn tími til að upplýsa um hverjir hér voru á ferð umfram það, sem fram hefur komið.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í stjórnmálavaktinni

Ummæli Charles Moore eru umhugsunarefni fyrir Árna Pál

Maður að nafni Charles Moore, skrifar reglulega dálka í brezka dagblaðið Daily Telegraph. Hann er fyrrum rit­stjóri blaðsins og ritstýrði reyndar einnig tímaritinu Spectator um skeið. Hann er því innanbúðarmaður í Íhalds­flokknum og nú í apríl kom út fyrsta bindi ævisögu hans um Margréti Thatcher.

Taldi Össur stöðu Grænlands og Færeyja of mikið smámál til að ræða við Stór-Svíann Bildt?

Skömmu fyrir kosningar kom Carl Bildt, utanríkis­ráðherra Svíþjóðar, hingað til lands. Hann tók þátt í fundum með Össuri Skarphéðinssyni, fráfarandi utanríkis­ráðherra. Á að minnsta kosti einum fundanna flutti Össur svo hástemmt lof um Carl, vin sinn, að hinum sænska aðalsmanni þótti nóg um, virtist hann um tíma halda að Össur hefði brugðið sér í hlutverk uppistandarans.

Verðandi utanríkis­ráðherra bíður endurreisnarstarf í samskiptum við aðrar þjóðir

Það er ekki ástæða til að gera lítið úr þeim vandamálum, sem fráfarandi ríkis­stjórn tók við, þegar hún tók við völdum veturinn 2009. Bankahrunið og efnahagshrunið er einstakur viðburður í nútímasögu íslenzka lýðveldisins. Og það er heldur ekki ástæða til að líta svo á að allt hafi verið gert á annan...

Steingrímur J. skammar íslenska kjósendur í FT - verður kallað á hann til að bjarga evrunni?

Sagt er frá því á mbl.is að kvöldi þriðjudags 14. maí að Steingrímur J. Sigfússon, fráfarandi ráðherra, hafi skrifað grein til birtingar í The Financial Times til skýringu á „hamförunum“ sem urðu í kosningunum þegar stjórnar­flokkarnir töpuðu samtals tæpum 28% atkvæða (Samfylking 16,9% og VG 10,8%) o...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS