Fimmtudagurinn 23. maí 2013

Hokin af 63 ára þingreynslu hverfa leiðtogar ríkis­stjórnar­innar frá ömurlegasta þinghaldinu


20. júní 2012 klukkan 07:41

Samtals hafa þau Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigurðsson 63 ára þingsetu að baki, hún 34 ár og hann 29 ár. Þrátt fyrir þetta sagði Jóhanna í þjóðhátíðarræðu sinni að þingið sem nú hefur verið frestað sé hið versta sem hún hafi kynnst. Það verði að leggja áherslu á að auka veg og virðingu alþingis.

Getty Images
Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon

Jóhanna og Steingrímur J. ættu að líta í eigin barm. Þau bera höfuðábyrgð á yfirbragði þinghaldsins og þó sérstaklega Jóhanna. Hin síðari ár (áður en hún settist í ríkisstjórn) hefur enginn þingmaður talað eins mikið um ábyrgð ráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir. Eftir að lokaábyrgð á störfum alþingis leggst á hennar herðar leyfir hún sér að láta á þann veg á Austurvelli við stall Jóns Sigurðssonar eins og að ábyrgðin sé annarra.

Deilur síðustu daga þingsins snerust um illa unnin frumvörp frá Steingrími J. Sigurðssyni sem ganga ekki aðeins gegn þjóðarhagsmunum heldur standast ekki kröfur sem ber að gera til þingmála. Allar yfirlýstar reglur um samráð og vönduð vinnubrögð voru brotin. Þar ber Jóhanna að sjálfsögðu einnig ábyrgð. Eitt af því sem hún hreykir sér af er að hafa komið á gæðaeftirliti með lagafrumvörpum ráðherra í forsætisráðuneytinu.

Hokin af 63 ára þingreynslu hverfa þau Jóhanna og Steingrímur J. nú frá einu ömurlegasta þinghaldi í manna minnum. Ábyrgðin á ósköpunum er þeirra.

Bj. Bj.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Björn Bjarnason var þingmaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 1991 til 2009. Hann var menntamálaráðherra 1995 til 2002 og dóms- og kirkjumálaráðherra frá 2003 til 2009. Björn var blaðamaður á Morgunblaðinu og síðar aðstoðarritstjóri 1979 til 1991.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í stjórnmálavaktinni

Ný ríkis­stjórn fær mikinn meðbyr í upphafi

Fólkið í landinu bindur miklar vonir við nýja ríkis­stjórn og ekki er ólíklegt að stjórnar­sáttmáli stjórnar­flokkanna tveggja muni ýta undir þær vonir. Það er þess vegna ástæða til að ætla að nýr kraftur færist í þjóðlífið á næstu vikum. Fráfarandi ríkis­stjórn hefur á seinni hluta kjörtímabils hennar verið eins og þungt farg á þjóðinni.

Um Hróa Hött okkar tíma

Hrói Höttur lifir góðu lífi og nú sem eins konar tákn baráttu hins almenna borgara við alþjóðlega fjármála­markaði.

Kosningar meðal Sama í Svíþjóð-réttur hreindýrahjarða eitt helzta kosningamálið

Í gær fóru fram í Svíþjóð kosningar til þings Sama, sem kemur fram fyrir hönd Sama í Svíþjóð. Slíkar kosningar fara fram á fjögurra ára fresti. Evrópu­vaktin hefur ekki upplýsingar um hvort úrslit kosninganna liggja fyrir eða hver þau urðu. Hins vegar fjallar vefmiðillinn Alska Dispatch um þau málefni, sem brenna á Sömum í Svíþjóð um þessar mundir. Níu flokkar buðu fram í kosningunum.

Aðhalds­stefnan vekur upp siðferðilegar spurningar ekki síður en efnahagslegar

Siðferðileg álitamál verða æ ríkari þáttur í opinberum umræðum í Evrópu um evrukreppuna og afleiðingar hennar, svo sem aðhaldspólitíkina, sem Þjóðverjar hafa verið í forystu fyrir en verður stöðugt umdeildari. Reuters birtir nú í sérstökum skoðanadálki grein eftir mann að nafni Nicholas Wapshott, sem er einn af æðstu ráðamönnum Times í London.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS