Þriðjudagurinn 21. maí 2013

Hvers vegna hafa Steingrímur J. og Össur þagað um mikilvægar upplýsingar í makríldeilunni?


15. júlí 2012 klukkan 10:46

Hér á Evrópuvaktinni birtist í gær og stendur enn frétt þess efnis, að Írar leggi til við fund sjávarútvegsráðherra ESB-ríkja í Brussel á morgun, mánudag, að tilboð til Íslendinga um 7,5% hlutdeild í veiðikvóta á makríl verði dregið til baka enda sé makríllinn að hverfa úr íslenzkri lögsögu. Þessar upplýsingar voru birtar opinberlega í fyrradag, föstudag, 13. júlí.

Hér verður ekki fjallað um það hvort Írar hafi rétt fyrir sér eða rangt fyrir sér í því að makríllinn sé að yfirgefa Íslandsmið. Það er annað mál, þótt mikilvægt sé.

Hitt vekur meira en furðu, að þessi frétt skuli berast til Íslands fyrir atbeina lítils vefmiðils á borð við Evrópuvaktina. Nú hlýtur utanríkisráðuneytið að hafa fengið upplýsingar um bréf írskra stjórnvalda til ráðherranna. Hafi ráðuneytið ekki haft þessar upplýsingar undir höndum er það til mark um alvarlega vanrækslu í starfi, sem ekki verður haldið fram hér að hafi verið til staðar.

En hvernig stendur á því, að utanríkisráðuneytið upplýsti þjóðina ekki þegar í stað um svo mikilvægan þátt í framvind makríldeilunnar? Eða sjávarútvegsráðuneytið, sem hlýtur að hafa fengið þessar upplýsingar frá utanríkisráðuneytinu.

Hvers vegna hafa þeir Össur Skarphéðinsson og Steingrímur J. Sigfússon legið á þessum upplýsingum?

Er það ekki rétt munað að ríkisstjórn þeirra sé sú ríkisstjórn, sem hefur lofað opinni og gagnsærri stjórnsýslu?

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í stjórnmálavaktinni

Um Hróa Hött okkar tíma

Hrói Höttur lifir góðu lífi og nú sem eins konar tákn baráttu hins almenna borgara við alþjóðlega fjármála­markaði.

Kosningar meðal Sama í Svíþjóð-réttur hreindýrahjarða eitt helzta kosningamálið

Í gær fóru fram í Svíþjóð kosningar til þings Sama, sem kemur fram fyrir hönd Sama í Svíþjóð. Slíkar kosningar fara fram á fjögurra ára fresti. Evrópu­vaktin hefur ekki upplýsingar um hvort úrslit kosninganna liggja fyrir eða hver þau urðu. Hins vegar fjallar vefmiðillinn Alska Dispatch um þau málefni, sem brenna á Sömum í Svíþjóð um þessar mundir. Níu flokkar buðu fram í kosningunum.

Aðhalds­stefnan vekur upp siðferðilegar spurningar ekki síður en efnahagslegar

Siðferðileg álitamál verða æ ríkari þáttur í opinberum umræðum í Evrópu um evrukreppuna og afleiðingar hennar, svo sem aðhaldspólitíkina, sem Þjóðverjar hafa verið í forystu fyrir en verður stöðugt umdeildari. Reuters birtir nú í sérstökum skoðanadálki grein eftir mann að nafni Nicholas Wapshott, sem er einn af æðstu ráðamönnum Times í London.

Ummæli Charles Moore eru umhugsunarefni fyrir Árna Pál

Maður að nafni Charles Moore, skrifar reglulega dálka í brezka dagblaðið Daily Telegraph. Hann er fyrrum rit­stjóri blaðsins og ritstýrði reyndar einnig tímaritinu Spectator um skeið. Hann er því innanbúðarmaður í Íhalds­flokknum og nú í apríl kom út fyrsta bindi ævisögu hans um Margréti Thatcher.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS