Sunnudagurinn 19. maí 2013

Er Samfylkingin hætt að tala við fólk?


23. júlí 2012 klukkan 10:37
Jóhanna Sigurðardóttir og José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, í Brussel í febrúar 2010.

Hvernig ætli sé með þennan flokk, sem heitir Samfylking og á þá ósk æðsta að koma Íslandi inn í Evrópusambandið? Ætli þessi flokkur hafi enga þörf fyrir að skýra afstöðu sína til þeirra atburða, sem hafa verið að gerast í Evrópu síðustu tvö árin fyrir kjósendum?

Kannast einhver við að hafa heyrt Jóhönnu Sigurðardóttur, formann Samfylkingar, fjalla um framvindu mála innan Evrópusambandsins á málefnalegan hátt?

Kannast einhver við að hafa heyrt Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra og fyrrverandi formann Samfylkingarinnar tala um þessa þróun á annan veg en þann að svara út í hött eða hafa uppi sína sérstöku tegund af fyndni, sem ekki skal gert lítið úr?

Er ekki lágmarkskrafa að forystusveit Samfylkingarinnar geri landsmönnum grein fyrir því hvernig þróun Evrópusambandsins og evrusvæðisins horfir við þeim og hver rök þeirra eru fyrir því að þrátt fyrir það, sem þar er að gerast eigi að halda áfram með aðildarumsóknina?

Er það ekki þáttur í þeirri opnu og gagmsæju sjórnsýslu, sem Samfylkingin lofaði - að tala við fólk?

Eða er Samfylkingin hætt að tala við fólk?

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í stjórnmálavaktinni

Ummæli Charles Moore eru umhugsunarefni fyrir Árna Pál

Maður að nafni Charles Moore, skrifar reglulega dálka í brezka dagblaðið Daily Telegraph. Hann er fyrrum rit­stjóri blaðsins og ritstýrði reyndar einnig tímaritinu Spectator um skeið. Hann er því innanbúðarmaður í Íhalds­flokknum og nú í apríl kom út fyrsta bindi ævisögu hans um Margréti Thatcher.

Taldi Össur stöðu Grænlands og Færeyja of mikið smámál til að ræða við Stór-Svíann Bildt?

Skömmu fyrir kosningar kom Carl Bildt, utanríkis­ráðherra Svíþjóðar, hingað til lands. Hann tók þátt í fundum með Össuri Skarphéðinssyni, fráfarandi utanríkis­ráðherra. Á að minnsta kosti einum fundanna flutti Össur svo hástemmt lof um Carl, vin sinn, að hinum sænska aðalsmanni þótti nóg um, virtist hann um tíma halda að Össur hefði brugðið sér í hlutverk uppistandarans.

Verðandi utanríkis­ráðherra bíður endurreisnarstarf í samskiptum við aðrar þjóðir

Það er ekki ástæða til að gera lítið úr þeim vandamálum, sem fráfarandi ríkis­stjórn tók við, þegar hún tók við völdum veturinn 2009. Bankahrunið og efnahagshrunið er einstakur viðburður í nútímasögu íslenzka lýðveldisins. Og það er heldur ekki ástæða til að líta svo á að allt hafi verið gert á annan...

Steingrímur J. skammar íslenska kjósendur í FT - verður kallað á hann til að bjarga evrunni?

Sagt er frá því á mbl.is að kvöldi þriðjudags 14. maí að Steingrímur J. Sigfússon, fráfarandi ráðherra, hafi skrifað grein til birtingar í The Financial Times til skýringu á „hamförunum“ sem urðu í kosningunum þegar stjórnar­flokkarnir töpuðu samtals tæpum 28% atkvæða (Samfylking 16,9% og VG 10,8%) o...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS