Sunnudagurinn 26. maí 2013

Hvernig ætlar Sjálfstæðis­flokkurinn að ljúka aðildarferlinu?


25. júlí 2012 klukkan 10:54

Sjálfstæðisflokkurinn á mikið verk óunnið til þess að búa sig undir að taka við stjórnartaumunum á ný næsta vor eins og allt stefnir nú í. Eitt af því mikilvægasta, sem flokkurinn þarf að komast að niðurstöðu um á næstu mánuðum - en ekki þegar þar að kemur - er hvernig ljúka á aðildarumsóknarferlinu að ESB í sæmilegum friði og sátt við aðildarþjóðirnar.

Eins og margoft hefur komið fram hér á Evrópuvaktinni er auðvitað ljóst að ferlið er dautt og bara spurning um, hvernig því verði lokið. Það skiptir hins vegar máli hvernig það verður gert.

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í þingkosningunum vorið 2013 þurfa að geta svarað spurningum kjósenda um það, hvernig þeir ætli að ljúka þessu ferli. Þau svör verða að vera skýr. Raunar er ekki ólíklegt að frambjóðendur í prófkjörum á vegum flokksins þurfi að svara spurningum um hið sama.

Þess vegna er nauðsynlegt að forystusveit Sjálfstæðisflokksins geri grein fyrir því fyrr en seinna hvernig hún hugsar sér að ljúka málinu.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í stjórnmálavaktinni

Svíþjóð: „Þetta er ekki skipulagður aðskilnaður en...“

Ólætin í úthverfum Stokkhólms hafa vakið meiri athygli fjölmiðla í öðrum löndum en hér. Þó mætti ætla að þessir atburðir vektu athygli hér vegna þess að við erum nákomnari öðrum Norðurlandaþjóðum en flestum öðum þjóðum. Það tók fjölmiðla hér nokkra daga að átta sig á að eitthvað væri að gerast í Svíþjóð. Þessi ólæti (óeirðir eru of sterkt orð) hafa nú staðið í bráðum eina viku.

VG: Katrín þakkar og lýsir árangri en gleymir að skýra úrslit þingkosninganna á

Katrín Jakobs­dóttir, formaður VG, sendi félögum sínum í flokknum þakkarkveðju í tilefni stjórnar­skiptanna fimmtudaginn 23. maí. Þar sagði hún ljóst að árangur ríkis­stjórnar Vinstri-grænna og Samfylkingar hefði verið „mikill“. Fyrst og fremst hefði náðst „gríðarlegur árangur í ríkisfjármálum án þess ...

Sumarfríin verða að bíða til næsta árs!

Viðbrögð við nýrri ríkis­stjórn Framsóknar­flokks og Sjálfstæðis­flokks hafa yfirleitt verið jákvæð og forystumenn stjórnar­andstöðunnar hafa sýnt hófsemd í ummælum sínum, sem er skynsamlegt hjá þeim. Segja má, að einu hnökrarnir, sem upp hafa komið snúi að umverfis­ráðuneytinu. Ráðstafanir varðandi það hafa vakið tortryggni.

Ný ríkis­stjórn fær mikinn meðbyr í upphafi

Fólkið í landinu bindur miklar vonir við nýja ríkis­stjórn og ekki er ólíklegt að stjórnar­sáttmáli stjórnar­flokkanna tveggja muni ýta undir þær vonir. Það er þess vegna ástæða til að ætla að nýr kraftur færist í þjóðlífið á næstu vikum. Fráfarandi ríkis­stjórn hefur á seinni hluta kjörtímabils hennar verið eins og þungt farg á þjóðinni.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS