Mánudagurinn 20. maí 2013

Verður EFSF látinn kaupa spænsk skulda­bréf á eftir­markaði?-Eða verður farið inn um bakdyr SE til að ná í peningana?


26. júlí 2012 klukkan 10:39

Þýzka dagblaðið Suddeutsche Zeitung, segir í dag að Evrópusambandið undirbúi nú að EFSF, hinn tímabundni neyðarsjóður ESB hefji kaup á spænskum ríkisskuldabréfum á eftirmarkaði til þess að ná niður lántökukostnaði Spánar. Fyrir hálfu ári var Seðlabanka Evrópu beitt með sama hætti til að ná niður vaxtakostnaði Spánar og tókst um hríð. Síðan hefur aðalbankastjóri þýzka Bundesbank ítrekað sagt að þau kaup SE verði ekki endurtekin.

Der Spiegel fjallar um þessa frétt dagblaðsins í dag og telur að Luis de Guindos, sem ýmist er kallaður efnahagsráðherra Spánar eða fjármálaráðherra í fréttum hafi hvatt til slíkra aðgerða í heimsókn sinni til Berlínar á þriðjudag og til Parísar í gær.

Aðstoðin við spænsku bankana, sem gefið hefur verið fyrirheit um er forsenda þess að hægt sé að beita EFSF með þessum hætti. Spiegel hefur heimildir fyrir því í Berlín að þýzk stjórnvöld séu ekki andvíg slíkum aðgerðum.

Lántökukostnaður Spánar hefur hækkað jafnt og þétt á tæpu ári. Evrópusambandið hefur með reglulegu millibili gripið til alls konar aðgerða til að lækka hann á ný og náð tímabundnum árangri en vandinn hefur alltaf farið í sama farveg aftur.

Í spænska dagblaðinu El Pais eru hins vegar vangaveltur í dag um, að ESM, hinn varanlegi neyðarsjóður ESB fái bankaleyfi, sem þýðir að sjóðurinn gæti tekið lán hjá Seðlabanka Evrópu og notað þá peninga til að kaupa spænsk skuldabréf og halda þar með niðri vöxtum.

Eftir er að sjá hvað Jens Weidman, aðalbankastjóri Bundesbank segir um að með þeim hætti verði farið bakdyrameginn inn í SE til þess að afla fjár til að bjarga Spáni.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Víglund Þorsteinsson Pistill

Evruland er nýlenda Þýskalands

Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...

 
Mest lesið
Fleira í stjórnmálavaktinni

Kosningar meðal Sama í Svíþjóð-réttur hreindýrahjarða eitt helzta kosningamálið

Í gær fóru fram í Svíþjóð kosningar til þings Sama, sem kemur fram fyrir hönd Sama í Svíþjóð. Slíkar kosningar fara fram á fjögurra ára fresti. Evrópu­vaktin hefur ekki upplýsingar um hvort úrslit kosninganna liggja fyrir eða hver þau urðu. Hins vegar fjallar vefmiðillinn Alska Dispatch um þau málefni, sem brenna á Sömum í Svíþjóð um þessar mundir. Níu flokkar buðu fram í kosningunum.

Aðhalds­stefnan vekur upp siðferðilegar spurningar ekki síður en efnahagslegar

Siðferðileg álitamál verða æ ríkari þáttur í opinberum umræðum í Evrópu um evrukreppuna og afleiðingar hennar, svo sem aðhaldspólitíkina, sem Þjóðverjar hafa verið í forystu fyrir en verður stöðugt umdeildari. Reuters birtir nú í sérstökum skoðanadálki grein eftir mann að nafni Nicholas Wapshott, sem er einn af æðstu ráðamönnum Times í London.

Ummæli Charles Moore eru umhugsunarefni fyrir Árna Pál

Maður að nafni Charles Moore, skrifar reglulega dálka í brezka dagblaðið Daily Telegraph. Hann er fyrrum rit­stjóri blaðsins og ritstýrði reyndar einnig tímaritinu Spectator um skeið. Hann er því innanbúðarmaður í Íhalds­flokknum og nú í apríl kom út fyrsta bindi ævisögu hans um Margréti Thatcher.

Taldi Össur stöðu Grænlands og Færeyja of mikið smámál til að ræða við Stór-Svíann Bildt?

Skömmu fyrir kosningar kom Carl Bildt, utanríkis­ráðherra Svíþjóðar, hingað til lands. Hann tók þátt í fundum með Össuri Skarphéðinssyni, fráfarandi utanríkis­ráðherra. Á að minnsta kosti einum fundanna flutti Össur svo hástemmt lof um Carl, vin sinn, að hinum sænska aðalsmanni þótti nóg um, virtist hann um tíma halda að Össur hefði brugðið sér í hlutverk uppistandarans.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS