Þriðjudagurinn 28. júní 2022

Upplýsinga­fulltrúi stækkunar­deildar ESB: Svona bréf dugar ekki til að draga umsóknina til baka


14. mars 2015 klukkan 09:10

Í Morgunblaðinu í dag segir Anca Paduraru, upplýsingafulltrúi hjá stækkunardeild ESB „það ekki leiða af bréfi Gunnars Braga að Ísland verði tekið af lista yfir umsóknarríki. Sé það vilji ríkisstjórnarinnar að umsóknin verði dregin til baka þurfi ríkisstjórnin að senda ráðherraráði ESB bréf. Ráðið muni svo taka afstöðu til slíkrar beiðni.“

Paduraru segir ennfremur í viðtali við Morgunblaðið:

„Það eru í gildi reglur, sem verður að fylgja. Þegar Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu var vissum reglum fylgt. Ísland sótti um aðild til ráðherraráðsins. Ef ríkisstjórnin vill draga umsóknina til baka þarf hún að fylgja vissum reglum. Svona bréf dugar ekki til að orðið verði við þeirri ósk. Það verður að fylgja reglunum. Íslenzk stjórnvöld verða að snúa sér til ráðsins og óska formlega eftir því að umsóknin sé dregin til baka. Svo einfalt er það. Hlutirnir ganga ekki þannig fyrir sig að íslenzk stjórnvöld geti farið þess á leit að ekki verði lengur litið á Ísland sem umsóknarríki. Það verður að fylgja reglunum og leita til ráðherraráðsins. Það mundi svo leita umsagnar framkvæmdastjórnar ESB og á grundvelli þess álits taka ákvörðun í framhaldinu. Það er ekki undir ráðinu komið að taka ákvörðun út frá bréfi þar sem segir að ekki skuli lengur litið á Ísland sem umsóknarríki.“

SG

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í stjórnmálavaktinni

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Klofingur meðal kristilegra í Þýskalandi vegna skuldavanda Grikkja

Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs ESB, sagði þriðjudaginn 31. mars að viðræður við Grikki um skuldamál væru svo flóknar að niðurstöðu væri ekki að vænta fyrr en undir lok apríl. Spenna vegna málsins er ekki aðeins á stjórnmálavettvangi í Grikklandi heldur einnig annars staðar á evru-svæðinu. Hefur s...

Alexis Tsipras: Ekki búast við skilyrðislausri uppgjöf

„Við leitum eftir heiðarlegri málamiðlun við lánardrottna en ekki búast við skilyrðislausri uppgjöf,“ sagði Akexis Tsipras, forsætis­ráðherra Grikkja, í ræðu í gríska þinginu í gær. Hann sagði að Grikkir hefðu lagt fyrir lánardrottna hugmyndir um að koma böndum á smygl á benzíni og tóbaki, eftirlit með fjármagnstilfærslum til erlendra banka og stöðvun vsk-svindls.

Engar haldbærar tillögur um umbætur liggja enn fyrir frá Grikkjum - unnið dag og nótt vegna ótta við greiðsluþrot

Síðdegis mánudaginn 30. mars höfðu evru-ráðherrahópnum og þríeykinu ekki enn borist tillögur grísku ríkis­stjórnar­innar um ráðstafanir til að fullnægja skilyrðum til útgreiðslu á lánsfé svo að bjarga megi Grikklandi frá greiðsluþroti. Ljóst er að niðurstaða um fyrir­greiðslu til Grikkja fæst ekki fyrr...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS