Föstudagurinn 22. janúar 2021

Heræfingar Rússa: Alls taka um 80.000 manns nú þátt í norðurslóðaæfingunum - teygja sig út á Noregshaf


19. mars 2015 klukkan 12:03

Langdrægar rússneskar sprengjuflugvélar af TU-95MS gerð sem geta borið kjarnorkuvopn hófu fimmtudaginn 19. mars þátttöku í hinum víðtæku heræfingum á norðurslóöum sem teygja sig frá Norður-Íshafi út á Noregshaf milli Íslands og Noregs.

Sputnik-fréttastofan hefur eftir rússneska varnarmálaráðuneytinu 19. mars að markmið æfinganna með sprengjuvélunum sé að kanna „viðbragðsflýti loftvarna í Norðvestur-Rússlandi“ og í þeim tilgangi hafi TU-95MS vélar frá Engels-flugstöðinni flogið inn á loftvarnasvæði Kóla-skagans og verði þeim svarað með loftvarnakerfum.

TASS-fréttastofan segir fimmtudaginn 19. mars að nú taki 80.000 manns þátt í heræfingunum á norðurslóðum og vísar þar til ummæla yfirmanns rússneska herráðsins. Hann segir einnig að 220 flugvélar taki þátt í æfingunum.

Vitnað er í Sergeij Shoigu, varnarmálaráðherra Rússlands, sem sagði miðvikudaginn 18. mars að hið skyndilega allsherjar útkall Norðurflotans mánudaginn 16. mars hefði gefið hinni nýstofnuðu Norðurherstjórn Rússa (SEVER) fyrsta tækifæri sitt til að láta reyna á innviði stjórnkerfis síns og mátt heraflans. Aldrei fyrr hafi Rússar samhæft hernaðarmátt sinn á norðurslóðum með þessum hætti.

Norðurherstjórnin tók til starfa síðla árs 2014 markmið hennar er að tryggja rússneska hagsmuni á norðurslóðum.

Bj. Bj.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Björn Bjarnason var þingmaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 1991 til 2009. Hann var menntamálaráðherra 1995 til 2002 og dóms- og kirkjumálaráðherra frá 2003 til 2009. Björn var blaðamaður á Morgunblaðinu og síðar aðstoðarritstjóri 1979 til 1991.

 
 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleira í stjórnmálavaktinni

Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópu­vaktarinnar

Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópu­vaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópu­vaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópu­sambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópu­sambandsins. Þá hefu...

Klofingur meðal kristilegra í Þýskalandi vegna skuldavanda Grikkja

Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs ESB, sagði þriðjudaginn 31. mars að viðræður við Grikki um skuldamál væru svo flóknar að niðurstöðu væri ekki að vænta fyrr en undir lok apríl. Spenna vegna málsins er ekki aðeins á stjórnmálavettvangi í Grikklandi heldur einnig annars staðar á evru-svæðinu. Hefur s...

Alexis Tsipras: Ekki búast við skilyrðislausri uppgjöf

„Við leitum eftir heiðarlegri málamiðlun við lánardrottna en ekki búast við skilyrðislausri uppgjöf,“ sagði Akexis Tsipras, forsætis­ráðherra Grikkja, í ræðu í gríska þinginu í gær. Hann sagði að Grikkir hefðu lagt fyrir lánardrottna hugmyndir um að koma böndum á smygl á benzíni og tóbaki, eftirlit með fjármagnstilfærslum til erlendra banka og stöðvun vsk-svindls.

Engar haldbærar tillögur um umbætur liggja enn fyrir frá Grikkjum - unnið dag og nótt vegna ótta við greiðsluþrot

Síðdegis mánudaginn 30. mars höfðu evru-ráðherrahópnum og þríeykinu ekki enn borist tillögur grísku ríkis­stjórnar­innar um ráðstafanir til að fullnægja skilyrðum til útgreiðslu á lánsfé svo að bjarga megi Grikklandi frá greiðsluþroti. Ljóst er að niðurstaða um fyrir­greiðslu til Grikkja fæst ekki fyrr...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS