Fundur Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, í fyrrakvöld, fimmtudagskvöld, með helztu leiðtogum ESB og stofnana þess var sviptingasamari en fram kom í fyrstu fréttum af fundinum. Guardian segir að í upphafi fundarins hafi Tsipras sagt öðrum fundarmönnum að hann vænti þess að fá þá peninga, sem Grikkir þyrftu á að halda án þess að mikið kæmi á móti.
Á næstu 10 mínútum hafi Tsipras verið gert ljóst að þannig mundu málin ekki ganga fyrir sig. Síðan hafi fundurinn gengið þokkalega þar til Mario Draghi, aðalbankastjóri Seðlabanka Evrópu, æfur af reiði yfir framkomu Grikkja við eftirlitsmenn þríeykisins, hafi tekið Tsipras í gegn fyrir þá framkomu. Þeir hafi nánast verið lokaðir inni á lúxus-hóteli í Aþenu og neitað um aðgang að ráðuneytum. Þá hafi fréttum um dvalarstað þeirra verið lekið með þeim afleiðingum að efnt hafi verið til mótmæla fyrir utan hótelið. Einn af eftirlitsmönnunum þurfti á tveimur lífvörðum að halda.
Angela Merkel hafi róað Tsipras með því að segja honum, að þegar fulltrúar AGS kæmu til Berlínar fengju þeir aðgang að öllu, sem þeir óskuðu eftir, jafnvel þótt það væri svolítið auðmýkjandi.
Niðurstaðan af fundinum varð hins vegar sú, að lánardrottnar Grikkja íhuga að flýta einhverjum peningagreiðslum til þeirra þar sem Tsipras sagði þeim að Grikkir mundu verða greiðsluþrota í lok apríl. ef það gerðist ekki.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Þáttaskil - hlé á útgáfu Evrópuvaktarinnar
Þriðjudaginn 27. apríl 2010 sá vefsíðan Evrópuvaktin dagsins ljós. Nú er komið að þáttaskilum. Á Evrópuvaktinni hefur verið lögð áhersla á málefni tengd Evrópusambandinu, þróun evrópskra stjórnmála og efnahagsmála auk umræðna hér á landi um þessi mál og tengsl Íslands og Evrópusambandsins. Þá hefu...
Klofingur meðal kristilegra í Þýskalandi vegna skuldavanda Grikkja
Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs ESB, sagði þriðjudaginn 31. mars að viðræður við Grikki um skuldamál væru svo flóknar að niðurstöðu væri ekki að vænta fyrr en undir lok apríl. Spenna vegna málsins er ekki aðeins á stjórnmálavettvangi í Grikklandi heldur einnig annars staðar á evru-svæðinu. Hefur s...
Alexis Tsipras: Ekki búast við skilyrðislausri uppgjöf
„Við leitum eftir heiðarlegri málamiðlun við lánardrottna en ekki búast við skilyrðislausri uppgjöf,“ sagði Akexis Tsipras, forsætisráðherra Grikkja, í ræðu í gríska þinginu í gær. Hann sagði að Grikkir hefðu lagt fyrir lánardrottna hugmyndir um að koma böndum á smygl á benzíni og tóbaki, eftirlit með fjármagnstilfærslum til erlendra banka og stöðvun vsk-svindls.
Síðdegis mánudaginn 30. mars höfðu evru-ráðherrahópnum og þríeykinu ekki enn borist tillögur grísku ríkisstjórnarinnar um ráðstafanir til að fullnægja skilyrðum til útgreiðslu á lánsfé svo að bjarga megi Grikklandi frá greiðsluþroti. Ljóst er að niðurstaða um fyrirgreiðslu til Grikkja fæst ekki fyrr...