Ástandið í efnahagsmálum í Grikklandi hefur nánast leitt til stöðvunar á greiðslum á milli viðskiptaaðila að sögn gríska vefmiðilsins ekathimerini. Skýrasta dæmið um það sé skattheimta, sem hafi aukizt lítillega í byrjun maí en hafi hrunið eftir þingkosningarnar 6. maí sl. Um 20. maí hafði orðið 20% samdráttur í skattgreiðslum í Grikklandi. Jafnframt hefur það aukizt mjög að afsláttur sé veittur gegn því að gefa ekki út reikning.
Stjórnvöld hafa stöðvað endurgreiðslur og greiðslur til birgja, sem eiga viðskipti við opinbera kerfið. Til viðbótar kemur að bankar hafa ekki lengur getu til að tryggja sæmilega lausafjárstöðu í efnahagslífinu. Lánveitingar hafa verið stöðvaðar, jafnvel til fyrirtækja, sem standa vel. Innistæður í grískum bönkum hafa lækkað um 70 milljarða evra frá upphafi evrukreppunnar og úttektir hafa aukizt eftir þingkosningarnar í byrjun maí. Bankar telja, að síðustu 20 daga hafi 2,5 milljarðar evra verið teknar út. Lánveitingar til fyrirtækja og heimila hafa lækkað um 11 milljarða evra á síðustu tveimur árum.
Þá hafa fyrirtæki hætt að lána hvert öðru. Þau vilja frekar missa af sölu en veita greiðslufrest eða taka við tékkum, sem dagsettir eru fram í tímann. Bæði hafa menn áhyggjur af því að fá aldrei greitt en að auki dregur það úr viðskiptum, að hugsanleg upptaka drökmu geti leitt til þess að vörur og þónusta verði ódýrari en áður. Erlendir viðskiptaaðilar hafa tilkynnt grískum viðskiptavinum, að þeir geti ekki sent greiðslur til Grikklands að svo komnu máli. Erlendir birgjar neita að senda vörur til Grikklands nema gegn staðgreiðslu eða bankaábyrgð frá erlendum banka. Hið sama á við um evrópskar stofnanir.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Evruland er nýlenda Þýskalands
Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...
Fjárlagahalli Bandaríkjanna minnkar hratt
Financial Times birti í gær yfirlit yfir stöðu efnahagsmála á heimsvísu, sem í stuttu máli lítur svona út frá sjónarhóli fréttaritara blaðsins.
Þýzkaland: Bild segir upp fólki
Hin hefðbundna dagblaðaútgáfa á pappír á í vök að verjast um allan heim en um leið eflast netútgáfur útgáfufyrirtækjanna, þótt þau séu enn að leita beztu leiða til að afla tekna með slíkri upplýsingamiðlun. Eitt af þeim dagblöðum, sem fram á síðustu ár hefur skilað miklum hagnaði er þýzka blaðið Bild, sem útgáfufélag Axels heitins Springer gefur út.
WSJ:Mesta efnahagslægð í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar
Bandaríska viðskiptadagblaðið Wall Street Journal segir að skuldakreppa evruríkjanna hafi þróazt í mestu efnahagslægð í Evrópu frá stríðslokum eða í bráðum 70 ár. Blaðið segir að áframhaldandi aðhald í opinberum útgjöldum, bankar, sem geti ekki lánað eða vilji ekki lána og þungar skuldir heimila liggi þungt á þessum ríkjum.
Allt í mínus í Evrópu en Bandaríkin á uppleið-Hvað veldur?
Á árinu 2012 minnkaði verg landsframleiðsla Grikkja um 5,3%, Kýpur um 4,1% og Portúgals um 3,9%. Jafnframt minnkaði vlf. Ítalíu um 2,1%, Spánar um 2%, Finnlands um 2% og Tékklands um 1,9%. Þetta eru nýjar tölur frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, sem birtar eru í euobserver. Til viðbótar þessum ...