Laugardagurinn 25. maí 2013

Bild: Grikkland verður að yfirgefa evru­svæðið


Styrmir Gunnarsson
2. júní 2012 klukkan 10:54

Bild Zeitung, eitt áhrifamesta dagblað í Þýzkaland kveður upp úr með það í dag, að Grikkland verði að yfirgefa evrusvæðið. Blaðið segir að komið sé að lokum. Grikkir hreinsi út bankareikninga sína, ekki sé lengur hægt að tryggja greiðslur vegna innflutnings til Grikklands, sögusagnir séu um að drökmur séu í prentun og þeir sem selja orku fái ekki lengur borgað.

Nikolaus Blome, aðal stjórnmálaskýrandi Bild segir í blaðinu í dag, að grískt samfélag sé í upplausn. Það skipti í sjálfu sér ekki máli, hvernig kosningarnar fari. Milljarðar evra frá Evrópu dag hvern geti bjargað Grikkland í dag eða á morgun, í næstu viku eða næsta mánuði en þeir peningar geti ekki tryggt þá nýju byrjun í pólitík, efnahagsmálum og stjórnsýslu, sem Grikkland þurfi á að halda. Grikkland verði að byggja upp á ný eins og þróunarlöndin.

Blome segir að einhver af leiðtogum evruríkjanna verði að segja Grikkjum sannleikann. Þetta nýja upphaf geti ekki orðið nema með því róttæka skrefi að Grikkland yfirgefi evrusvæðið.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í viðskiptavaktinni

Verzlunin svarar Guðna

Þau Margrét Kristmanns­dóttir, formaður Samtaka verzlunar og þjónustu og Andrés Magnússon, framkvæmda­stjóri samtakanna, taka til varna gegn gagnsókn Guðna Ágústssonar fyrrum landbúnaðar­ráðherra á hendur verzluninni í Morgunblaðinu í dag og segja: "Það er hverju orði sannara hjá Guðna að of margir fermetrar eru lagðir undir verzlunarhúsnæði í landinu.

Landbúnaðurinn hefur gagnsókn á hendur verzluninni

Guðni Ágústsson, fyrrum ráðherra og formaður Framsóknar­flokks skrifar grein í Morgunblaðið í dag, sem hyggilegt er fyrir forystumenn í viðskiptalífinu í Reykjavík að lesa vel.

Nýr Englandsbanka­stjóri: Evrópa stendur frammi fyrir stöðnun í áratug að óbreyttu

Mark Carney, sem er að taka við sem banka­stjóri Englandsbanka segir að Evrópa standi frammi fyrir áratug stöðnunar, „týndum áratug“ (lost decade) ef ekki verði gripið til djarfra aðgerða eins og gert hefur verið í Japan. Daily Telegraph segir að þessi ummæli ýti undir vangaveltur um að hann muni grípa til áþekkra aðgerða, þegar hann tekur við starfi innan tíðar.

Sala Vodafón dregst saman í Evrópu vegna efnahagslægðar

Efnahagslægðin í Evrópu og þá sérstaklega á evru­svæðinu er farin að taka sinn toll. BBC segir frá því í morgun að í fyrsta sinn í átta ár hafi sala Vodafón, sem er farsíma„risi“ dregizt saman. Tekjur á ársgrundvelli hafa dregizt saman um 4,4% í kjölfar lækkunar á gjaldskrá, sem var viðleitni til að halda viðskiptavinum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS