Ávöxtunarkrafan á ítölsk og spænsk skuldabréf hefur lækkað í kjölfar G-20 fundarins að sögn BBC. Í dag hefur krafan á10 ára skuldabréf Spánar á eftirmarkaði, sem komin var í 7,3% farið niður í 6,86% og á sambærileg ítölsk bréf er hún komin niður í 5,84%.
Fjölmiðlar telja, að samkomulag hafi teklzt í Mexikó síðustu daga á fundi leiðtoga G-20 ríkjanna um aðgerðir til að lækka lántökukostnað á evrusvæðinu. Þó er enn allt í óvissu um hvort Þjóðverjar muni samþykkja slílkar aðgerðir eða hvort Angela Merkel reynist hafa bolmagn til að fá slíkar aðgerðir samþykktar heima fyrir.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri
Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturludóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.
Þau Margrét Kristmannsdóttir, formaður Samtaka verzlunar og þjónustu og Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri samtakanna, taka til varna gegn gagnsókn Guðna Ágústssonar fyrrum landbúnaðarráðherra á hendur verzluninni í Morgunblaðinu í dag og segja: "Það er hverju orði sannara hjá Guðna að of margir fermetrar eru lagðir undir verzlunarhúsnæði í landinu.
Landbúnaðurinn hefur gagnsókn á hendur verzluninni
Guðni Ágústsson, fyrrum ráðherra og formaður Framsóknarflokks skrifar grein í Morgunblaðið í dag, sem hyggilegt er fyrir forystumenn í viðskiptalífinu í Reykjavík að lesa vel.
Nýr Englandsbankastjóri: Evrópa stendur frammi fyrir stöðnun í áratug að óbreyttu
Mark Carney, sem er að taka við sem bankastjóri Englandsbanka segir að Evrópa standi frammi fyrir áratug stöðnunar, „týndum áratug“ (lost decade) ef ekki verði gripið til djarfra aðgerða eins og gert hefur verið í Japan. Daily Telegraph segir að þessi ummæli ýti undir vangaveltur um að hann muni grípa til áþekkra aðgerða, þegar hann tekur við starfi innan tíðar.
Sala Vodafón dregst saman í Evrópu vegna efnahagslægðar
Efnahagslægðin í Evrópu og þá sérstaklega á evrusvæðinu er farin að taka sinn toll. BBC segir frá því í morgun að í fyrsta sinn í átta ár hafi sala Vodafón, sem er farsíma„risi“ dregizt saman. Tekjur á ársgrundvelli hafa dregizt saman um 4,4% í kjölfar lækkunar á gjaldskrá, sem var viðleitni til að halda viðskiptavinum.