Mánudagurinn 20. maí 2013

Spiegel: Samkomulagið skapar Grikkjum nýja vígstöðu


Styrmir Gunnarsson
29. júní 2012 klukkan 10:52

Samkomulagið í Brussel í nótt vekur upp spurningar um hvaða áhrif það hafi á ríki, sem þegar hafa fengið neyðarlán frá EFSF, hinum tímabundna neyðarsjóði ESB, segir Der Spiegel í morgun, en í samkomlaginu felst m.a. að neyðarlánum til banka á Spáni frá ESM hinum varanlega neyðarsjóði ESB muni ekki fylgja skilmálar af því tagi, sem Grikkir, Írar og Portúgalar urðu að fallast á.

Mattes

Embættismenn í Brussel segja að hið nýja samkomulagi hafi engin áhrif á það, sem áður hafi verið gert. Der Spiegel bendir hins vegar á, að þau ríki kunni að setja fram kröfur um mildari skilmála. Það eigi sérstaklega við um Grikki, sem nú fái nýja vígstöðu í samningum við lánardrottna sína..

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleira í viðskiptavaktinni

Þýzka þingið hefur sett 30 ný lög um strangari reglur vegna starfsemi banka

Þýzka þingið hefur sett um 30 ný lög, sem snerta fjármála­markaði. Þetta kemur fram á Deutsche-Welle, sem segir að í lögunum felist nýjar og strangari reglur um fjármála­markaði, sem þýzkur þingmaður (CDU), Hans Michelbach lýsir sem nýrri stjórnar­skrá fyrir banka. Umræður og atkvæða­greiðslur stóðu yfir í tvo daga.

Fjárlagahalli Bandaríkjanna minnkar hratt

Financial Times birti í gær yfirlit yfir stöðu efnahagsmála á heimsvísu, sem í stuttu máli lítur svona út frá sjónarhóli fréttaritara blaðsins.

Þýzkaland: Bild segir upp fólki

Hin hefðbundna dagblaðaútgáfa á pappír á í vök að verjast um allan heim en um leið eflast netútgáfur útgáfufyrirtækjanna, þótt þau séu enn að leita beztu leiða til að afla tekna með slíkri upplýsinga­miðlun. Eitt af þeim dagblöðum, sem fram á síðustu ár hefur skilað miklum hagnaði er þýzka blaðið Bild, sem útgáfu­félag Axels heitins Springer gefur út.

WSJ:Mesta efnahagslægð í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar

Bandaríska viðskiptadagblaðið Wall Street Journal segir að skuldakreppa evruríkjanna hafi þróazt í mestu efnahagslægð í Evrópu frá stríðslokum eða í bráðum 70 ár. Blaðið segir að áframhaldandi aðhald í opinberum útgjöldum, bankar, sem geti ekki lánað eða vilji ekki lána og þungar skuldir heimila liggi þungt á þessum ríkjum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS