Laugardagurinn 18. maí 2013

Daily Mail eykur umsvif í netútgáfu á heimsvísu


Styrmir Gunnarsson
3. júlí 2012 klukkan 10:31
Samsung neitar því að nýja spjaldtölvan líki eftir iPad.

Daily Mail er annað mest selda dagblað í Bretlandi (á eftir The Sun) og er upplag þess tæplega 2 milljónir eintaka. Blaðið á sér langa sögu, var stofnað 1896, og hefur á ákveðnum tímabilum haft mikil áhrif í brezku þjóðlífi. Það stendur mitt á milli gæðablaða á borð við Telegraph, Guardian og Financial Times og götublaða á borð við Sun og Mirror. Þegar stjórnmálaleiðtogar leita eftir stuðningi blaða í Bretlandi horfa þeir ekki sízt til Sun og Daily Mail.

En jafnframt hefur blaðið náð miklum árangri með netútgáfu sinni Mail Online, sem nú er mest notaða netútgáfa dagblaðs í Bandaríkjunum. Talið er að 2,3 milljónir manna fari inn á netútgáfuna í Bretlandi einu saman, daglega.

Mail Online hefur nú á að skipa um 70 starfsmönnum í London, New York og Los Angeles og hefur nú tilkynnt að skrifstofur verði opnaðar í Toronto í Kanada, Dehli á Indlandi og Sydney í Ástralíu. Mail Online er því bersýnilega að gera þessi enskumælandi svæði í heiminum að sínum heimamarkaði.

Þessi ákvörðun útgáfufélags Daily Mail undirstrikar þá nýju möguleika, sem netið opnar fyrir dagblöð.

Þegar horft er til okkar umhverfis er t.d. ljóst að lestæki á borð við Æpadda og önnur slík tæki opna möguleika fyrir blað eins og Morgunblaðið að ná betur til fólks á landsbyggðinni, sem hefur ekki kunnað því vel að fá blaðið seint sama dag eða nokkrum dögum síðar. Jafnframt er augljóst að miklir möguleikar felast í markaðssetningu gagnvart þeim 20-30 þúsund Íslendingum, sem búa í öðrum löndum í lengri eða skemmri tÍma.

Jafnframt er það áhugaverð spurning hvort Íslendingabyggðir vestan hafs gætu verið nýr markaður fyrir íslenzka fjölmiðla. Þótt þeim fækki, sem lesa íslenzku er þar fjöldi fólks, sem hefur áhuga á að fylgjast með íslenzkum málum. Þess vegna gætu fréttir á ensku frá Íslandi höfðað til fólks á þeim svæðum.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Styrmi Gunnarsson Pistill

Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri

Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturlu­dóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.

 
Mest lesið
Fleira í viðskiptavaktinni

Fjárlagahalli Bandaríkjanna minnkar hratt

Financial Times birti í gær yfirlit yfir stöðu efnahagsmála á heimsvísu, sem í stuttu máli lítur svona út frá sjónarhóli fréttaritara blaðsins.

Þýzkaland: Bild segir upp fólki

Hin hefðbundna dagblaðaútgáfa á pappír á í vök að verjast um allan heim en um leið eflast netútgáfur útgáfufyrirtækjanna, þótt þau séu enn að leita beztu leiða til að afla tekna með slíkri upplýsinga­miðlun. Eitt af þeim dagblöðum, sem fram á síðustu ár hefur skilað miklum hagnaði er þýzka blaðið Bild, sem útgáfu­félag Axels heitins Springer gefur út.

WSJ:Mesta efnahagslægð í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar

Bandaríska viðskiptadagblaðið Wall Street Journal segir að skuldakreppa evruríkjanna hafi þróazt í mestu efnahagslægð í Evrópu frá stríðslokum eða í bráðum 70 ár. Blaðið segir að áframhaldandi aðhald í opinberum útgjöldum, bankar, sem geti ekki lánað eða vilji ekki lána og þungar skuldir heimila liggi þungt á þessum ríkjum.

Allt í mínus í Evrópu en Bandaríkin á uppleið-Hvað veldur?

Á árinu 2012 minnkaði verg landsframleiðsla Grikkja um 5,3%, Kýpur um 4,1% og Portúgals um 3,9%. Jafnframt minnkaði vlf. Ítalíu um 2,1%, Spánar um 2%, Finnlands um 2% og Tékklands um 1,9%. Þetta eru nýjar tölur frá framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins, sem birtar eru í euobserver. Til viðbótar þessum ...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS