
Ed Miliband, leiðtogi Verkamannaflokksins í Bretlandi hefur brugðizt við bankahneykslinu þar í landi með því að krefjast þess, að stóru bankarnir fimm selji frá sér um 1000 útibú til þess að auka samkeppni. Guardian segir í morgun að Miliband muni gera nánari grein fyrir þessum hugmyndum sínum í dag í ræðu í höfuðstöðvum Samvinnubankans í London.
Miliband telur að það sé nauðsynlegt fyrsta skref að brjóta á bak aftur einokun fimm stærstu bankanna. Lloyds er að selja um 650 útibú til Samvinnubankans og Miliband leggur til að 400 útibú verði seld til viðbótar.
Þá er gert ráð fyrir að Miliband styðji hugmyndir Evrópusambandsins um að bónusgreiðslur megi ekki nema hærri upphæð en árslaunum viðkomandi starfsmanns. George Osborne, fjármálaráðherra hefur þegar lýst því yfir, að hann muni berjast gegn þeim hugmyndum í Brussel.
Þá er gert ráð fyrir að Miliband leggi til stofnun Brezks fjárfestingarbanka til þess að styðja við bakið á atvinnulífinu, sem hann telur að þurfi að heyja samkeppni við aðra með hendur bundnar fyrir aftan bak.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Sala Vodafón dregst saman í Evrópu vegna efnahagslægðar
Efnahagslægðin í Evrópu og þá sérstaklega á evrusvæðinu er farin að taka sinn toll. BBC segir frá því í morgun að í fyrsta sinn í átta ár hafi sala Vodafón, sem er farsíma„risi“ dregizt saman. Tekjur á ársgrundvelli hafa dregizt saman um 4,4% í kjölfar lækkunar á gjaldskrá, sem var viðleitni til að halda viðskiptavinum.
Bretland: Hópur forystumanna í viðskiptalífi vill áfram aðild að ESB
Hópu forystumann í brezku viðskiptalífi heldur því fram, að fjárhagslegur ávinningur Breta af aðild að Evrópusambandinu nemi um 92 milljörðum punda á ári.
Þýzka þingið hefur sett 30 ný lög um strangari reglur vegna starfsemi banka
Þýzka þingið hefur sett um 30 ný lög, sem snerta fjármálamarkaði. Þetta kemur fram á Deutsche-Welle, sem segir að í lögunum felist nýjar og strangari reglur um fjármálamarkaði, sem þýzkur þingmaður (CDU), Hans Michelbach lýsir sem nýrri stjórnarskrá fyrir banka. Umræður og atkvæðagreiðslur stóðu yfir í tvo daga.
Fjárlagahalli Bandaríkjanna minnkar hratt
Financial Times birti í gær yfirlit yfir stöðu efnahagsmála á heimsvísu, sem í stuttu máli lítur svona út frá sjónarhóli fréttaritara blaðsins.