Fyrir tæpu ári var evrópskum bönkum gert að auka eigið fé sitt tímabundið upp í 9% og áttu að hafa náð því marki í júní sl. Nú hefur Andrea Enria formaður European Banking Authority sagt að hann telji að þetta hlutfall eigi að verða varanlegt. FT segir að þetta sé töluvert hærra en BASEL III geri ráð fyrir og megi búast við að þessi krafa auki á spennu í evrópskum bankaheimi.
Enria segir að á árunum 2011 og 2012 hafi um 240 milljarðar evra verið settir inn í evrópska bankakerfið með ýmsum hætti og bendir á, að á árinu 2008 hafi Bandaríkjamenn í einni aðgerð styrkt stöðu bandarískra banka um 245 milljarða dollara.
Munurinn sé hins vegar sá, að Evrópuríkin hafi gert þetta smátt og smátt en Bandaríkin í einu höggi ef svo má að orði komast. Þess vegna hafi bandarísku aðgerðirnar haft mun meiri áhrif en hinar evrópsku.
SG
Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.
Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri
Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturludóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.
Nýr Englandsbankastjóri: Evrópa stendur frammi fyrir stöðnun í áratug að óbreyttu
Mark Carney, sem er að taka við sem bankastjóri Englandsbanka segir að Evrópa standi frammi fyrir áratug stöðnunar, „týndum áratug“ (lost decade) ef ekki verði gripið til djarfra aðgerða eins og gert hefur verið í Japan. Daily Telegraph segir að þessi ummæli ýti undir vangaveltur um að hann muni grípa til áþekkra aðgerða, þegar hann tekur við starfi innan tíðar.
Sala Vodafón dregst saman í Evrópu vegna efnahagslægðar
Efnahagslægðin í Evrópu og þá sérstaklega á evrusvæðinu er farin að taka sinn toll. BBC segir frá því í morgun að í fyrsta sinn í átta ár hafi sala Vodafón, sem er farsíma„risi“ dregizt saman. Tekjur á ársgrundvelli hafa dregizt saman um 4,4% í kjölfar lækkunar á gjaldskrá, sem var viðleitni til að halda viðskiptavinum.
Bretland: Hópur forystumanna í viðskiptalífi vill áfram aðild að ESB
Hópu forystumann í brezku viðskiptalífi heldur því fram, að fjárhagslegur ávinningur Breta af aðild að Evrópusambandinu nemi um 92 milljörðum punda á ári.
Þýzka þingið hefur sett 30 ný lög um strangari reglur vegna starfsemi banka
Þýzka þingið hefur sett um 30 ný lög, sem snerta fjármálamarkaði. Þetta kemur fram á Deutsche-Welle, sem segir að í lögunum felist nýjar og strangari reglur um fjármálamarkaði, sem þýzkur þingmaður (CDU), Hans Michelbach lýsir sem nýrri stjórnarskrá fyrir banka. Umræður og atkvæðagreiðslur stóðu yfir í tvo daga.