Sunnudagurinn 26. maí 2013

FT um LIBOR: Fjórir evrópskir bankar til rannsóknar auk Barclays


Styrmir Gunnarsson
19. júlí 2012 klukkan 10:03

Rannsókn á LIBOR-vaxtahneykslinu beinist nú að fjórum evrópskum bönkum til viðbótar við Barclays að sögn Financial Times. Þetta eru HSBC, Deutsche Bank og frönsku bankarnir Credit Agricole og Société General. Blaðið segir að tengsl á milli miðlara þessara fjögurra banka og fyrrum miðlara Barcays, Philippe Moryoussef, séu nú til rannsóknar. Hann hafi nýtt sér persónuleg tengsl við starfsmenn bankanna fjögurra.

Sir Mervyn King, Englandsbankastjóri, hefur sent nokkrum seðlabankastjórum bréf og boðið þeim til fundar í Sviss hinn 9. september n.k. til þess að ræða róttækar umbætur á LIBOR-vaxtakerfinu. Til fundarins er m.a. boðið bankastjórum Seðlabanka Evrópu og Seðlabanka Bandaríkjanna auk nokkurra annarra.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Styrmi Gunnarsson Pistill

Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri

Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturlu­dóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.

 
Mest lesið
Fleira í viðskiptavaktinni

Verzlunin svarar Guðna

Þau Margrét Kristmanns­dóttir, formaður Samtaka verzlunar og þjónustu og Andrés Magnússon, framkvæmda­stjóri samtakanna, taka til varna gegn gagnsókn Guðna Ágústssonar fyrrum landbúnaðar­ráðherra á hendur verzluninni í Morgunblaðinu í dag og segja: "Það er hverju orði sannara hjá Guðna að of margir fermetrar eru lagðir undir verzlunarhúsnæði í landinu.

Landbúnaðurinn hefur gagnsókn á hendur verzluninni

Guðni Ágústsson, fyrrum ráðherra og formaður Framsóknar­flokks skrifar grein í Morgunblaðið í dag, sem hyggilegt er fyrir forystumenn í viðskiptalífinu í Reykjavík að lesa vel.

Nýr Englandsbanka­stjóri: Evrópa stendur frammi fyrir stöðnun í áratug að óbreyttu

Mark Carney, sem er að taka við sem banka­stjóri Englandsbanka segir að Evrópa standi frammi fyrir áratug stöðnunar, „týndum áratug“ (lost decade) ef ekki verði gripið til djarfra aðgerða eins og gert hefur verið í Japan. Daily Telegraph segir að þessi ummæli ýti undir vangaveltur um að hann muni grípa til áþekkra aðgerða, þegar hann tekur við starfi innan tíðar.

Sala Vodafón dregst saman í Evrópu vegna efnahagslægðar

Efnahagslægðin í Evrópu og þá sérstaklega á evru­svæðinu er farin að taka sinn toll. BBC segir frá því í morgun að í fyrsta sinn í átta ár hafi sala Vodafón, sem er farsíma„risi“ dregizt saman. Tekjur á ársgrundvelli hafa dregizt saman um 4,4% í kjölfar lækkunar á gjaldskrá, sem var viðleitni til að halda viðskiptavinum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS