Þriðjudagurinn 21. maí 2013

Barclays: Þóknanir vegna hluta­bréfakaupa frá Katar og Abu Dhabi til rannsóknar


Styrmir Gunnarsson
28. júlí 2012 klukkan 09:23

Ný rannsókn á Barclays-banka, sem snýr að greiðslu þóknana vegna hlutafjáraukningar á árinu 2008 og sagt hefur verið frá í fréttum Evrópuvaktarinnar, snýr að því, hvort nægar upplýsingar hafi verið gefnar um greiðslur á þóknunum til fyrirtækja í Miðausturlöndum að því er fram kemur í Daily Telegraph í dag.

Á árinu 2008 komst Barclays hjá því að taka við almannafé með hlutafjáraukningu, sem nam milljörðum sterlingspunda. Á því ári gerði bankinn samkomulag við Qatar Investment Authority um könnun á viðskiptum við Sumitomo Mitsui Banking Corporation í Japan. Í júní lagði Katar nýtt hlutafé í Barclays sem nam 2 milljörðum punda. Í nóvember reitti Barclays þá hluthafa sem fyrir voru til reiði með samningum um kaup fjárfesta í Miðausturlöndum á hlutafé að upphæð 6,8 milljarða punda með mun meiri kostnaði fyrir bankann en ef hann hefði þegið aðstoð frá brezka ríkinu.

Fyrir þennan samning greiddi bankinn 300 milljónir punda í þóknun en af þeirri upphæð gengu 116 milljónir punda til Qatar Holding og 110 milljónir punda til Sjeik Mansour Bin Zayed al Nahhan, sem er meðlimur konungsfjölskyldu Abu Dhabi. Kaupsýslukona að nafni Amanda Staveley og fyrirtæki hennar PCP Capital Partners fékk 40 milljónir punda í þóknun fyrir ráðgjöf sem milliliður milli bankans og Abu Dhabi.

Það er skortur á upplýsingagjöf vegna þessara viðskipta, sem virðist skv. fréttum hafa leitt til hinnar nýju rannsóknar á Barclays-banka.

Eins og lesendur EV kannski muna kom Katar við sögu Kaupþings, þegar tilkynnt var hinn 22. september 2008 að Mohammed Al-Thani frá Qatar hefði keypt 5% hlut í bankanum.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Styrmi Gunnarsson Pistill

Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri

Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturlu­dóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.

 
Mest lesið
Fleira í viðskiptavaktinni

Sala Vodafón dregst saman í Evrópu vegna efnahagslægðar

Efnahagslægðin í Evrópu og þá sérstaklega á evru­svæðinu er farin að taka sinn toll. BBC segir frá því í morgun að í fyrsta sinn í átta ár hafi sala Vodafón, sem er farsíma„risi“ dregizt saman. Tekjur á ársgrundvelli hafa dregizt saman um 4,4% í kjölfar lækkunar á gjaldskrá, sem var viðleitni til að halda viðskiptavinum.

Bretland: Hópur forystumanna í viðskiptalífi vill áfram aðild að ESB

Hópu forystumann í brezku viðskiptalífi heldur því fram, að fjárhagslegur ávinningur Breta af aðild að Evrópu­sambandinu nemi um 92 milljörðum punda á ári.

Þýzka þingið hefur sett 30 ný lög um strangari reglur vegna starfsemi banka

Þýzka þingið hefur sett um 30 ný lög, sem snerta fjármála­markaði. Þetta kemur fram á Deutsche-Welle, sem segir að í lögunum felist nýjar og strangari reglur um fjármála­markaði, sem þýzkur þingmaður (CDU), Hans Michelbach lýsir sem nýrri stjórnar­skrá fyrir banka. Umræður og atkvæða­greiðslur stóðu yfir í tvo daga.

Fjárlagahalli Bandaríkjanna minnkar hratt

Financial Times birti í gær yfirlit yfir stöðu efnahagsmála á heimsvísu, sem í stuttu máli lítur svona út frá sjónarhóli fréttaritara blaðsins.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS