Fimmtudagurinn 23. maí 2013

For­stjóri RBS: Spjótin eiga eftir að beinast gegn okkur


Styrmir Gunnarsson
30. júlí 2012 klukkan 09:31

Stephen Hester, aðalforstjóri Royal Bank of Scotland, segir í viðtali við Guardian, að bankinn eigi eftir að standa frammi fyrir ásökunum um aðild að Libor-vaxta hneykslinu. Hann segir að spjótin eigi eftir að beinast að bankanum, sem var haldið á floti með almannafé í bankakreppunni, sem skall á 2008. Hann staðfesti að rannsókn brezka Fjármálaeftirlitsins (FSA) væri í gangi en kvaðst ekki vita um hve háa sektarfjárhæð yrði að ræða.

Í samtalinu segir Hester, að burtséð frá sektunum snúizt málið um vinnubrögð fámenns hóps starfsmanna í nokkrum bönkum. En þau vinnubrögð setji blett á bankaheiminn allan.

Í samtalinu segir Hester að forstjórar bankar verði að búa við mjög takmarkað starfsöryggi. Hann segist alltaf hafa gengið út frá því, að brottför hans frá bankanum verði ekki endilega á þeim tíma og með þeim hætti, sem hann sjálfur óski.

Stephen Hester hefur afþakkað bónusgreiðslur á þessu ári. Á síðasta ári fékk hann eina milljón punda í bónus, sem hann skilaði en greiðslan vaklti mikla reiði meðal almennings.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Styrmi Gunnarsson Pistill

Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri

Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturlu­dóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.

 
Mest lesið
Fleira í viðskiptavaktinni

Landbúnaðurinn hefur gagnsókn á hendur verzluninni

Guðni Ágústsson, fyrrum ráðherra og formaður Framsóknar­flokks skrifar grein í Morgunblaðið í dag, sem hyggilegt er fyrir forystumenn í viðskiptalífinu í Reykjavík að lesa vel.

Nýr Englandsbanka­stjóri: Evrópa stendur frammi fyrir stöðnun í áratug að óbreyttu

Mark Carney, sem er að taka við sem banka­stjóri Englandsbanka segir að Evrópa standi frammi fyrir áratug stöðnunar, „týndum áratug“ (lost decade) ef ekki verði gripið til djarfra aðgerða eins og gert hefur verið í Japan. Daily Telegraph segir að þessi ummæli ýti undir vangaveltur um að hann muni grípa til áþekkra aðgerða, þegar hann tekur við starfi innan tíðar.

Sala Vodafón dregst saman í Evrópu vegna efnahagslægðar

Efnahagslægðin í Evrópu og þá sérstaklega á evru­svæðinu er farin að taka sinn toll. BBC segir frá því í morgun að í fyrsta sinn í átta ár hafi sala Vodafón, sem er farsíma„risi“ dregizt saman. Tekjur á ársgrundvelli hafa dregizt saman um 4,4% í kjölfar lækkunar á gjaldskrá, sem var viðleitni til að halda viðskiptavinum.

Bretland: Hópur forystumanna í viðskiptalífi vill áfram aðild að ESB

Hópu forystumann í brezku viðskiptalífi heldur því fram, að fjárhagslegur ávinningur Breta af aðild að Evrópu­sambandinu nemi um 92 milljörðum punda á ári.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS