Laugardagurinn 18. maí 2013

Bankarnir: Lög­reglurannsókn hjá Barclays á Ítalíu-Deutsche og UBS leggja fjármuni til hliðar fyrir sektar- og skaðabóta­greiðslum


Styrmir Gunnarsson
1. ágúst 2012 klukkan 09:37

Ítölsk lögregluyfirvöld framkvæmdu sl. föstudag húsleit á skrifstofum Barclays-banka í Mílanó og var markmið hennar að leita sannana fyrir því að fikt bankans við Libor-vextina hefði skaðað viðskiptavini bankans á Ítalíu. Lögreglan tók skjöl, tölvupósta og annað stafrænt efni en það voru neytendasamtök, sem gerðu kröfu um slíka rannsókn.

En það eru fleiri en Barclays sem eiga í erfiðleikum af þessum sökum. Bæði Deutsche Bank og svissneski UBS-bankinn hafa lagt fjármuni til hliðar vegna hugsanlegra sekta- og skaðabótagreiðslna og jafnframt standa bankarnir frammi fyrir minnkandi hagnaði.

Financial Times segir að Libor-hneykslið og versnandi viðskiptaumhverfi hafi leitt til vaxandi vantrúar á bankarekstur yfirleitt. Deutsche Bank gerir nú ráð fyrir að þurfa að greiða 2,1-2,5 milljarða evra í sektir og skaðabætur. UBS hefur aukið varasjóð sinn af þessum sökum um 210 milljónir svissneskra franka.

Þá hefur Deutsche tilkynnt um uppsagnir 1900 af 100 þúsund starfsmönnnum bankans.

SG

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

Styrmir Gunnarsson er lögfræðingur og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Hann hóf störf sem blaðamaður á Morgunblaðinu 1965 og varð aðstoðarritstjóri 1971. Árið 1972 varð Styrmir ritstjóri Morgunblaðsins, en hann lét af því starfi árið 2008.

 
 
Eftir Styrmi Gunnarsson Pistill

Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri

Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturlu­dóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.

 
Mest lesið
Fleira í viðskiptavaktinni

Fjárlagahalli Bandaríkjanna minnkar hratt

Financial Times birti í gær yfirlit yfir stöðu efnahagsmála á heimsvísu, sem í stuttu máli lítur svona út frá sjónarhóli fréttaritara blaðsins.

Þýzkaland: Bild segir upp fólki

Hin hefðbundna dagblaðaútgáfa á pappír á í vök að verjast um allan heim en um leið eflast netútgáfur útgáfufyrirtækjanna, þótt þau séu enn að leita beztu leiða til að afla tekna með slíkri upplýsinga­miðlun. Eitt af þeim dagblöðum, sem fram á síðustu ár hefur skilað miklum hagnaði er þýzka blaðið Bild, sem útgáfu­félag Axels heitins Springer gefur út.

WSJ:Mesta efnahagslægð í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar

Bandaríska viðskiptadagblaðið Wall Street Journal segir að skuldakreppa evruríkjanna hafi þróazt í mestu efnahagslægð í Evrópu frá stríðslokum eða í bráðum 70 ár. Blaðið segir að áframhaldandi aðhald í opinberum útgjöldum, bankar, sem geti ekki lánað eða vilji ekki lána og þungar skuldir heimila liggi þungt á þessum ríkjum.

Allt í mínus í Evrópu en Bandaríkin á uppleið-Hvað veldur?

Á árinu 2012 minnkaði verg landsframleiðsla Grikkja um 5,3%, Kýpur um 4,1% og Portúgals um 3,9%. Jafnframt minnkaði vlf. Ítalíu um 2,1%, Spánar um 2%, Finnlands um 2% og Tékklands um 1,9%. Þetta eru nýjar tölur frá framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins, sem birtar eru í euobserver. Til viðbótar þessum ...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS