Miðvikudagurinn 25. maí 2022

Orðrómur um alþjóðlegt inngrip til bjargar evru


21. maí 2010 klukkan 10:29

Orðrómur er um það, að sögn franska blaðsins Le Monde, að seðlabankar Kína, Japans og Sviss séu með sameiginlegt átak á döfinni til að styrkja evruna. Jafnframt kemur fram í blaðinu, að hvort sem orðrómurinn eigi við rök að styðjast eða ekki hafi hann stöðvað fall evrunnar og styrkt hana frá því að kosta 1,22 dollara miðvikudag 19. maí í 1,26 dollar að morgni föstudags 21. maí.

Þessar vangaveltur um íhlutun erlendra seðlabanka eru sagðar til marks um áhyggjur um heim allan yfir því, að hik og ósamkomulag evrópskra ríkisstjórna og stjórnmálamanna, grafi undan fjármálastöðugleika langt út fyrir landamæri Evrópu.

Fjölmiðlar eru teknir til við að spyrja sérfræðinga um, hvað muni gerast, verði Grikkir hraktir út úr evru-samstarfinu, hvernig þeim muni vegnast með drökmuna að nýju sem gjaldmiðil. Viðmælandi í BBC World Service sagði að morgni 20. maí, að það færi eftir því, hvernig upphafsgengi hinnar nýju drökmu yrði ákveðið.

Í kauphöllum veðja menn á, að áfram verði spurn eftir olíu og gasi auk matvæla. Bréf í fyrirtækjum í þessum greinum falla ekki verði. Sama verður ekki sagt um ál, því að hlutabréf í Alcoa lækkuðu um mest á Bandaríkjamarkaði á 20. maí eða um 5,9%

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS