Keyptu nútímalegar fjármálaafurðir
Dagens Næringsliv í Osló segir að yfir 1000 bæir og önnur sveitarfélög í Evrópu séu í skuldakreppu. Þessi sveitarfélög hafi tapað miklum fjármunum á nútímalegum fjármálaafurðum. Blaðið segir, að norsku bæirnir Narvik og Haugesund séu í þessum hópi.
DN nefnir sem dæmi franska bæinn Saint-Etienne, þar sem 180 þúsund manns búa. Bæjarfélagið hafi verið rekið eins og vogunarsjóður eða fjárfestingarbanki. Bæjarfélagið sé að tapa sem nemi 800 milljónum norskra króna og skuldir þess nemi 3 milljörðum norskra króna. Vaxtakostnaður bæjarfélagsins nemi nú 24% á ári.
Talið er að um 200 þýzk sveitarfélög hafi keypt sams konar fjármálaafurðir og Saint-Etienne með áþekkum afleiðingum.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.