Laugardagurinn 28. maí 2022

Stærsti niðurskurður í sögu Þýskalands


7. júní 2010 klukkan 22:56

Þýska ríkisstjórnin gekk mun lengra í niðurskurði í ríkisútgjöldum en spáð hafði verið. Angela Merkel, kanslari, skýrði frá því síðdegis mánudaginn 7. júní, að árið 2011 yrði 11,2 milljarða samdráttur í ríkisútgjöldum. Stefnt væri að því spara allt að 80 milljörðum til ársins 2014.

Angela Merkel

Deutsche Welle-fréttastofan segir, að aldrei fyrr í sögu Þýskalands hafi verið gripið til svo harkalegra sparnaðaraðgerða í ríkisrekstri og við niðurskurð útgjalda til velferðarmála.

Fyrir blaðamannafund Angelu Merkel, þar sem hún kynnti áform stjórnar sinnar, töldu margir, að stefnt yrði að 50 milljarða evru niðurskurði. Hann verður hins vegar 80 milljarðar og á skemmri tímar en sérfræðingar höfðu spáð.

2011 er stefnt að 11,2 milljarða evru niðurskurði, 17,1 árið 2012, 25,7 árið 2013 og 32,4 milljarða evru árið 2014. Til að ná þessu markmiði verður opinberum störfum fækkað um 10.000 á fjórum árum, skattafrádráttur minnkar og ýmsar opinberar niðurgreiðslur. Hvorki verður hróflað við lífeyrisgreiðslum né heilbrigðiskerfinu. Skipulagsbreytingar verða gerðar innan þýska hersins, sem miða meðal annars að því að fækka hermönnum um 40.000 úr 250.009.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS