Ekki detta í þessa gildru Íslendingar, sagði Finninn Timo Soini, þingmaður í umræðum á Evrópuþinginu í morgun um aðildarumsókn Íslands og bætti við: Við erum lítið land og sjálfsákvörðunarréttur okkar hefur verið frá okkur tekinn. Annar þingmaður á Evrópuþinginu Nick Griffin frá Bretlandi sagði: það eru bara 26% Íslendinga, sem hafa látið plata sig. Ég hvet Íslendinga til að segja nei – haldið frelsi ykkar!
Danskur þingmaður á Evrópuþinginu sagði að yrði kosið á Íslandi um aðild í dag mundu 70% þjóðarinnar segja nei og áróðursherferð af hálfu Evrópusambandsins mundi engu breyta.
Ungverskur þingmaður, sem sérhæfir sig í mannréttindamálum sagði efnislega við Íslendinga: Þið eigið rétt á að fá réttar upplýsingar – ekki bara um jákvæðu hliðarnar heldur þær neikvæðu líka. Þið sem eruð andvíg aðild eigið sama rétt á fjármunum og aðrir til ykkar baráttu.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.