Sunnudagurinn 29. maí 2022

Lene Espersen talin segja ósatt um Kabúl-ferð


1. ágúst 2010 klukkan 09:20

Tveir fyrrverandi danskir utanríkisráðherrar draga í efa, að Lene Espersen, núverandi utanríkisráðherra Danmerkur, segi rétt frá, þegar hún fullyrðir, að embættismenn í ráðuneyti hennar hafi ákveðið, að leigja einkaþotu til að fljúga með ráðherrann til Kabúl 20. júlí í stað þess að fara með þotu á vegum danska hersins. Þar sem Espersen var í einkaþotu en ekki hervél, fékk hún ekki að lenda í Kabúl, varð hún að „nauðlenda“ í Kasakhstan og komst aldrei þaðan á utanríkisráðherrafundinn í Kabúl, sneri heim og hélt áfram í sumarleyfi með fjölskyldu sinni á Ítalíu.

Lene Espersen og Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hittust í Washington 18. júní, 2010

Mogens Lykketoft, jafnaðarmaður, og Niels Helveg Pedersen, úr radikale venstre, sem báðir hafa gegnt embætti utanríkisráðherra telja óhugsandi, að embættismenn í utanríkisráðuneytinu hafi ekki haft Espersen með í ráðum, þegar ákveðið var með hvernig vél yrði flogið með hana á hinn mikilvæga utanríkisráðherrafund í Kabúl.

Þetta kemur fram í Ekstra Bladet í Kaupmannahöfn 1. ágúst. Þar birtist einnig grein eftir Hans Engell, fyrrverandi formann danska Íhaldsflokksins, en þar er Espersen formaður nú. Engell trúir ekki heldur þeim skýringum Espersen, að hún hafi ekki verið með í ráðum hann segir:

„Það er einfaldlega óhugsandi. Utanríkisráðuneytið er ekki stærra en svo, að undir ráðherrann er borið, þegar lagt er á ráðin um ferðalag til jafn ömurlegs staðar og Kabúl.“

Lene Espersen sætir mikilli gagnrýni í Danmörku fyrir að sinna ekki embættisskyldum sínum sem utanríkisráðherra með því að taka ekki þátt í alþjóðlegum fundum og kjósa frekar að vera í fríi með fjölskyldu sinni. Hafa vinsældir hennar snarfallið í skoðanakönnunum, en á sínum tíma var hún í hópi vinsælustu stjórnmálamanna í Danmörku. Þá hefur fylgi Íhaldsflokksins einnig dalað, frá því hún tók við formennsku í flokknum í byrjun ársins og varð utanríkisráðherra.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS