Sunnudagurinn 29. maí 2022

Vigara meðal lyfjafríðinda ESB-þingmanna


10. ágúst 2010 klukkan 15:20

ESB-þingmenn geta fengið Viagra endurgreitt samkvæmt skilmálum sjúkratrygginga sinna – og skattgreiðendur bera kostnaðinn, segir breska blaðið The Sun 10. ágúst.

Í frétt blaðsins segir, að allir embættismenn ESB og stjórnmálamenn geti fengið stinningarlyfið Viagra ókeypis. Þeir geti einnig fengið methadon til að losna úr viðjum heróins endurgreitt samkvæmt reglum framkvæmdastjórnar ESB.

Marta Andreasen, var á sínum tíma yfirbókhaldari og sinnti fjármálaeftirliti á vegum framkvæmdastjórnar ESB, en var hrakin úr starfi. Hún situr nú á ESB-þinginu fyrir UKIP-flokkinn í Bretlandi, sem berst gegn ESB-aðild, og sagði við The Sun, að það væri með ólíkindum, hvað breskir skattgreiðendur væru látnir borga fyrir Evrókratana.

„Ef þeir þurfa á þessu að halda, ættu þeir að borga fyrir það sjálfir. Þetta er hrein sóun á skattfé almennings,“ sagði hún.

Í opinberu reglunum um endurgreiðslur segir: „Hér eftir verður unnt að fá meðferð með Viagra endurgreidda.“

Í reglunum segir einnig, að unnt sé að krefjast fullrar endurgreiðslu vegna kostnaðar við lyf, sem notuð séu til að vinna á fráhvarfseinkennum af vanabindandi neyslu fíkniefna. „Þessi efni falla undir sérstaka 100% endurgreiðslu í sex mánuði.“

The Sun, sem hefur mesta útbreiðslu dagblaða í Bretlandi, segir, að á síðasta ári hafi verið greint frá því, að ESB-þingmenn fengju endurgreiðslur vegna nudds og feng shui. Sömu sögu væri að segja um leirböð, vatnsnudd og meðferð með veiku rafstuði.

Blaðið bar þessi ESB-fríðindi undir Matthew Sinclair, talsmann Félags breskra skattgreiðenda, sem sagði: „Skattgreiðendur vilja að fé þeirra sé varið til að veita nauðsynlega þjónustu, ekki Viagra. Ríkisstjórnin ætti að krefjast betri samnings frá Brussel.“

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS