Evrópuvaktin 510
Jean-Claude Trichet, aðalbankastjóri evrópska seðlabankans hvatti í gærkvöldi á fundi í Bandaríkjunum til aðhalds í efnahagsmálum, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að Bernanke, bandaríski seðlabankastjórinn gaf til kynna að hann væri tilbúinn til að hefja nýjar örvunaraðgerðir til þess að koma í veg fyrir nýjan samdrátt í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram í Irish Times í dag.
Trichet sagði í ræðu sinni, að skuldasöfnun neytenda, fyrirtækja og ríkisstjórna væri meginástæðan fyrir því að nú hægði á efnahagsbatanum og að lækkun skulda væri forsenda fyrir efnahagslegu jafnvægi og vexti á næstu árum. Tricher sagði að lækka þyrfti skuldir Evrópuríkja niður í 60% af vergri landsframleiðslu, sem þýddi þriðjungslækkun frá því sem nú væri.
Trichet sagði að það sjónarmið að skammtímasjónarmið kölluðu á aukinn útgjöld og að leiða ætti hjá sér skuldabyrðina fyrst í stað væri hættulegt og vitnaði til þess, að bankar í Japan hefðu á tíunda áratug síðustu aldar stuðla að veikri efnahagsstöðu landsins með því að framlengja tapaðar skuldir illa rekinna fyrirtækja.
Sú leið að lifa með skuldunum um ófyrirsjáanlega framtíð er ekki fær, sagði Trichet.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.