Sunnudagurinn 29. maí 2022

Ísþekja 2010 á N-Íshafi þriðja minnsta frá árinu 1979


27. september 2010 klukkan 20:05

National Snow and Ice Data Center í Bandaríkjunum birti 27. september þá niðurstöðu sína, að ísþekjan á Norður-Íshafi hafi í ár orðið minnst hinn 19. september og þá verið 4.60 milljón ferkílómetrar. Er það þriðja minnsta ísþekja frá því að mælingar hófust árið 1979.

Minnsta ísþekjan 2010 var 37 þúsund ferkílómetrum stærri en ísþekjan 2008 og 470 þúsund ferkílómetrum stærri en árið 2007, þegar ísþekjan varð minnst. Hins vegar var ísþekjan 2010 500 þúsund ferkílómetrum minni en hún var 2009. Ísþekjan 2010 var 2.11 milljón ferkílómetrum minni en meðalstærðin á árum 1979 til 2000, og 1,74 milljón ferkílómetrum minni en meðalstærðin 1979 til 2009.

Sé litið til ísmagns á einstökum svæðum árið 2007 og árið 2010, þá var minni ís 2010 í norðurhluta Beaufort hafs, á Austur-Grænlandshafi og á vesturhluta Laptev hafs. Hins vegar miklu meiri ís á Austur-Síberíuhafi en árið 2007.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS