Richard Lochhead, sjávarútvegsráðherra Skotlands, varð að þeirri ósk sinni á fundi sjávarútvegsráðherra ESB-ríkjanna í Brussel mánudaginn 27. september að fá að hafa orð fyrir bresku sendinefndinni á fundinum, þegar rætt var um makríldeiluna við Íslendinga og Færeyinga.
Í viðtali við skoska fjölmiðla frá Brussel, sagðist hann vera fyrsti skoski sjávarútvegsráðherrann, sem hefði sótt ráðherrafund ESB með heimild til að tala fyrir hönd bresku sendinefndarinnar á fundinum. Það sýndi, hve makrílveiðar væru mikilvægar fyrir Skota. Þess vegna hefði trúverðugleiki Skota eflst mjög á fundinum samhliða meiri sýnileika en áður.
Ráðherrann segir, að hann muni hitta Mariu Damanaki, sjávarútvegsstjóra ESB, föstudaginn1. október, þegar hún komi í fyrstu heimsókn sína til Skotlands. Á fundum með henni muni hann enn hvetja til þess, að ESB sýni hörku, ef Íslendingar og Færeyingar neiti að sýna skynsemi á viðræðufundinum í London 12. október.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.