Miðvikudagurinn 25. maí 2022

Fréttablaðið: 64,2% vilja ljúka aðildarviðræðum-35,2% draga umsóknina til baka


28. september 2010 klukkan 08:25

Fréttablaðið segir frá því í morgun, að „ 64,2% þeirra sem afstöðu tóku vilji ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið og halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamninga frekar en að draga umsóknina til baka. Um 35,8 prósent voru þeirrar skoðunar að frekar ætti að draga umsóknina til baka“, svo að vitnað sé í frásögn Vísis.is af könnun Fréttablaðsins.

Össur kampakátur í Brussel með utanríkisráðherra Belgíu.

Í frétt netmiðilisins kemur fram, að um 83,8% stuðningsmanna Samfylkingar vilji ljúka aðildarviðræðum en 16,2% þeirra vilja draga umsóknina til baka.

Í hópi stuðningsmanna VG vilja 63,6% ljúka viðræðum en 36,4% draga umsóknina til baka.

Meðal stuðningsmanna Sjálfstæðisflokks vilja 53,6% draga umsóknina til baka en 46,4% vilja ljúka aðildarviðræðum.

Í hópi stuðningsmanna Framsóknarflokks vilja 52,2% draga umsóknina til baka en 47,8% ljúka viðræðum.

Hringt var í 800 manns sl. fimmtudag. Spurningin var svona:

Hvort mundir þú heldur kjósa:

1)Að draga til baka umsóknina um aðild að Evrópusambandinu eða

2)Að ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið og halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamninginn?

Vísir.is segir að 88,9% hafi tekið afstöðu til spurningarinnar.

Hinn 14. júní sl. birti Evrópuvaktin niðurstöðu skoðanakönnunar MMR fyrir Andríki.is þar sem fram kom, að 57,9% þjóðarinnar voru fylgjandi því að aðildarumsóknin yrði dregin til baka en tæplega 25% voru því andvíg. Þá var spurningin þessi:

Hversu fylgjandi eða andvíg(ur) ertu því, að íslenzk stjórnvöld dragi umsókn um aðild að Evrópusambandinu til baka?

Þá svöruðu 846 einstaklingar og tóku 761 afstöðu.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS