Föstudagurinn 20. maí 2022

Írar í miðdepli skuldakreppu evruríkja


29. september 2010 klukkan 08:47

Írland er að verða miðdepill umræðna um skuldakreppu evruríkjanna að því er fram kemur í Wall Street Jopurnal í morgun. Blaðið bendir á, að Írar hafi gripið til harkalegra niðurskurðaraðgerða í upphafi fjármálakreppunnar fyrir tveimur árum en þrátt fyrir það hafi lítill hagvöxtur, vaxandi atvinnuleysi og mikið tap fjáramálafyrirtækja leitt til þess að fjárlagahallinn er að verða 12% af vergri landsframleiðslu. Írsk stjórnvöld segja, að skuldavanda landsins megi leysa en hagfræðingar telja margir að það verði ekki gert án aðstoðar utan frá. WSJ nefnir aðstoð frá Evrópusambandinu. Aðrir telja, að Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn þurfi einnig að koma við sögu. Skuldatryggingaálag á Írlandi náði nýjum hæðum í gær.

WSJ segir að Írar geti dregið úr kostnaði við björgun Anglo Irish Bank með því að láta lánardrottna sitja uppi með stærri hluta tapsins. Slíkar aðgerðir mundu leiða til vinsælda meðal almennings en mundu valda reiði alþjóðlegra fjárfesta og gera írskum bönkum almennt erfitt fyrir. Fjármálamarkaðir hafa verið lokaðir tveimur öðrum bönkum á Írlandi, Bank of Ireland og Allied Irish Bank.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS