Christine Lagarde, fjármálaráðherra Frakklands kynnir í dag tillögur sínar um fjárlög ársins 2011 og segir New York Times í morgun að þar verði farið vægar í niðurskurðaraðgerðir en í ýmsum öðrum evruríkjum. Ríkisstjórn Sarkozys er óvinsæl um þessar mundir og reynir að standa við gefin loforð um aðhald í ríkisútgjöldum án þess að grípa til jafn róttækra aðgerða og gert hefur verið á Spáni, Bretlandi og Írlandi.
Þannig ætla Frakkar að draga úr útgjöldum með því að fella niður stuðningsaðgerðir síðustu tveggja ára, sem nemur 15 milljörðum evra, 10 milljarða evra á að spara með því að draga úr frádráttarliðum í skattakerfinu og jafnframt á að setja þak á margvísleg opinber útgjöld. Að öðru leyti gera Frakkar sér vonir um að efnahagsbati skili nægilega miklum tekjuauka til að þeir nái markmiðum sínum í ríkisfjármálum fram til ársins 2013.
Vandi Frakka er hins vegar sá, að aðgerðir þeirra verða að vera svo sannfærandi að fjármálamarkaðir taki mark á þeim.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.