Laugardagurinn 28. maí 2022

Toppfundur Kína og ESB endaði með illindum-blaðamannafundi aflýst


7. október 2010 klukkan 08:40

Fáni Evrópusambandsins

Toppfundur forystumanna Kína og Evrópusambandsins endaði með illindum í Brussel í gær. Fyrirhuguðum blaðamannafundi var aflýst og Kínverjar vöruðu Evrópusambandið við því að beita þá of miklum þrýstingi vegna gengis júansins. Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína sagði á fundi með evrópskum kaupsýslumönnum:

„Ég segir við leiðtoga Evrópu-takið ekki þátt í þrýstingi á Kína um að hækka gengi júansins. Mörg útflutningsfyrirtæki okkar yrðu að loka, verkafólk yrði að snúa til baka til heimabyggða sinna. Ef þjóðfélagsóeirðir yrðu í Kína og efnahagslegt uppnám yrði það áfall fyrir heimsbyggðina.“

Frá þessu segir euobserver í dag og segir að kínverski forsætisráðherrann hafi látið þessi orð falla eftir að talsmenn ESB höfðu haldið því fram, að lágt gengi júansins mundi skaða útflutning frá evrusvæðinu og þar með efnahagslega endurreisn þess og þannig óbeint skaða hagsmuni kínverskra útflytjenda.

Þær skýringar voru gefnar á því að blaðamannafundinum var aflýst, að ekki hefði verið pláss fyrir hann á tímaplani þátttakenda en aðrar heimildir segja, að ástæðan hafi verið ósamkomulag milli Kína og Evrópuríkjanna.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS