Bankar gagnrýna tillögur um úrlausn
Á Írlandi fara nú fram umræður um skuldavanda heimila að því er fram kemur í Irish Times í dag. Samkvæmt tillögum, sem opinber stofnun (Financial Regulator) hefur lagt fram er gert ráð fyrir, að viðskiptavinur banka, sem hefur hagað sér sæmilega vel í viðskiptum við bankann (behaving reasonably well) fái skjól fyrir aðfararaðgerðum. Banki geti ekki krafizt nauðungarsölu fyrr en 12 mánuðum eftir að endurskipulögð greiðsluáætlun hefur farið út um þúfur. Þá er gert ráð fyrir takmörkunum á því hversu oft í mánuði banki má láta viðskiptavininn heyra frá sér.
Írsku bankarnir hafa lýst andstöðu við þessar hugmyndir og telja að þær muni auka lántökukostnað annarra.. Þeir segja einnig að slíkar aðgerðir mundu hafa neikvæð áhrif á alþjóðlega fjármálamarkaði og hækka lántökukostnað Íra á þeim mörkuðum.
Bank of Ireland telur, að viðskiptavinir kunni að misnota slíka fresti og telur ástæðulaust að setja takmarkanir á hversu oft banki megi reka á eftir greiðslum frá lántakanda. Ulster Bank bendir á að tillögurnar geri ráð fyrir, að lántakanda mundi nægja að greiða einungis 3 mánuði af 36 til þess að eiga rétt á 12 mánaða fresti.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.