Þýska leyniþjónustan, BND, stóð straum af kostnaði við heimsókn austurríska öfga-þjóðernissinnans Jörgs Haiders til Saddams Husseins, einræðisherra í Írak, árið 2002. Þetta kemur fram í austurríska fréttaritinu Profil sunnudaginn, 24. október.
Í tímaritinu segir, að BND hafi haft áhuga á samböndum Haiders í Írak og nýtt sér ónafngreindan austurrískan kaupsýslumann til að skipuleggja ferðina og greiða fyrir flugseðlana.
Í Profil segir, að Ewald Stadler, félagi í Frelsisflokki Haiders og blaðafulltrúi hans hafi einnig verið í ferðinni í maí 2002. Í blaðinu segir einnig, að BND hafi greitt „nokkur hundruð þúsunda evra til að fylgjast með Haider.“
Þýska leyniþjónustan vildi ekki segja neitt um málið, þegar Profil sneri sér til hennar. Austurríski kaupsýslumaðurinn vildi ekki heldur segja neitt.
Hinn 58 ára gamli Haider fórst í bílslysi í október 2008. Hann var undir áhrifum áfengis.
Í ágúst var skýrt frá því í Profil og öðrum austurrískum fjölmiðlum, að í áranna rás hefði Haider lagt 45 milljónir evra á leynireikning í Liechtenstein. Sagt var, að féð væri frá Moammar Gaddaffi, einræðisherra í Líbýu, og Saddam Hussein.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.