„Við verðum að hafa í huga tilfinningar fólks, sem setur fram það réttmæta sjónarmið, að fjárfestar verði líka að taka á sig byrðar, ekki bara skattgreiðendur“, segir Angela Merkel, kanslari Þýzkalands að sögn Daily Telegraph í morgun, á leiðtogafundi ESB fyrir helgi.
Blaðið vitnar einnig í Axel Weber, aðalbankastjóra þýzka Bundesbank, sem segir:
„Næst þegar vandamál kemur upp verða handhafar skuldabréf að taka þátt í lausninni en ekki vera hluti af vandanum. Hingað til eru það bara skattgreiðendur, sem hafa borgað.“
Ambrose Evans-Pritchard, viðskiptaritstjóri blaðsins segir að þetta séu þau skilyrði, sem Merkel hafi sett öðrum leiðtogum ESB-ríkja sl. föstudag. Evans-Pritchard telur, að í samþykkt leiðtogafundarins felist, að ríki, sem safni skuldum með eyðslu og geti ekki lagað sig að skilmálum hins sameiginlega gjaldmiðils muni horfast í augu við skipulagt gjaldþrot. Eigendur skuldabréfa ríkja og banka muni kynnast því hvað í því felist að dreifa byrðunum. Skuldavandi verði leystur ýmist með því að fella niður vexti um skeið eða lækka höfuðstól skulda.
Sameiginlegur gjaldmiðill útiloki ekki áhættu. Hann breyti áhættu úr gengisáhættu í hættu á að lenda í greiðsluþroti.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.