Nefnd vísra manna á vegum Evrópusambandsins hefur komizt að þeirri niðurstöðu, að það muni kosta 100 milljarða evra að koma menningarafleifð Evrópuríkja á stafrænt form og er þá átt við bækur í söfnum um alla Evrópu, sem máli skipta og annars konar menningarleg verðmæti, sem hægt er að koma í þetta form. Til þess að setja þessa tölu í samhengi hafa þeir hins vegar bent á að þróun og framleiðsla sameiginlegrar evrópskrar orustuþotu kosti um 40 milljarða evra.
Nefndin leggur til að aðildarríki ESB auki mjög fjárfestingu sína í stafrænu efni og stefni að því að ná ákveðnum áfanga í þeim efnum á árinu 2016 og að árangur þeirrar vinnu verði að finna á sameiginlegu evrópsku stafrænu safni.
Nefndin bendir á, að það verði erfitt að rökstyðja slíka fjárfestingu úr opinberum sjóðum á tímum niðurskurðar og aðhalds og hvetur til þess að reynt verði að fá einkaaðila til að leggja fjármagn í þetta verkefni.
Google hefur frá árinu 2004 unnið að því að setja einstæðar bækur á stafrænt form. Talið er að um 130 milljónir slíkra séu til í heiminum og hefur Google nú sett 15 milljónir þeirra á þetta form. Sú aðgerð er umdeild. Rætt hefur verið um einkavæðingu þekkingar í því sambandi en Google fullyrðir að fyrirtækið leggi áherzlu á að almenningur hafi opinn aðgang að því safni. Um þetta er fjallað á euobserver í dag.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.